fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

Black Beach Tours: Ógleymanleg upplifun í Þorlákshöfn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 31. mars 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er fátt skemmtilegra en fjórhjólaferð eða RIB-bátaferð í heillandi umhverfi. Fyrirtækið Black Beach Tours býður upp á slíkar ferðir í Þorlákshöfn. Fjaran þar er einkar falleg, um 10 kílómetra löng sandströnd (eldfjallaströnd) sem nær frá Ölfusá að bænum og mætir þar tilkomumiklum klettaveggjum að vestanverðu. Ógleymanlegt er að fara þarna um á fjórhjóli eða RIB-báti.

„Við erum frekar ný í þessum bransa, byrjuðum rekstur sumarið 2017 og árið 2018 var fyrsta heila árið í rekstri og má segja að við séum enn í uppbyggingarfasa. Við erum líka búin að opna 10 herbergja gistiheimili, Black Beach Guesthouse, og setja upp þrjá bústaði (e. cottage) rétt fyrir utan bæinn við golfvöllinn. Þorlákshöfn hefur ekki boðið upp á mikið fyrir ferðamenn í gegnum tíðina og við orðið talsvert á eftir mörgum öðrum bæjum hvað þennan bransa varðar. En þetta er að breytast hratt og hér hafa opnast margir möguleikar í ferðaþjónustu á síðustu árum, til dæmis eru hér góðir veitingastaðir, glæsileg íþróttaaðstaða, sundlaug og góð aðstaða fyrir tjaldgesti. Hér í nágrenninu eru líka ýmsir gistimöguleikar og nokkuð gott framboð af afþreyingu, eins og til dæmis hestaleigur og -sýningar, kajakleiga og hellaskoðun í Lavatunnel, svo dæmi séu tekin,“ segir Össi hjá Black Beach Tours og bætir við:

„Þótt við séum tiltölulega ný í bransanum hafa viðtökur verið mjög góðar og vanalega förum fram úr væntingum viðskiptavina, hvort sem um er að ræða litla eða stóra hópa, Íslendinga eða erlenda gesti, og við erum virkilega ánægð með þær góðu umsagnir sem hafa birst meðal annars á Tripadvisor, Google og Facebook. Okkar markmið er að gera okkur enn sýnilegri og við höfum væntingar um að auka vöruframboðið og fá fleiri gesti.“

Black Beach Tours býður upp á fjórhjólaferðir allt árið um kring. Í boði eru einnar og tveggja klukkustunda ferðir eftir ströndinni og hins vegar þriggja tíma ferðir þar sem farið er um hraun og slóða vestur í Selvog og að Strandarkirkju.

RIB-bátaferðir eru í boði á tímabilinu maí til október og er þar hægt að velja á milli 30 mínútna adrenalínferðar, klukkustundar langrar ferðar og tveggja tíma ferðar, en sú síðastnefnda liggur vestur í Krýsuvíkurbjarg. Einnig er hægt að splæsa saman fjórhjólaferð og RIB-bátaferð (Comboferð) sem er afar skemmtileg blanda.

Einnig er boðið upp á sérferðir (e. private tours) á bæði fjórhjól og í RIB-bátaferðir, en að auki er hægt að fara í sjóstöng á Auðdísi sem er 40 feta mótorsnekkja og yfirleitt þarf ekki að fara langt til að komast í góða veiði.

Black Beach Tours er með mjög góða aðstöðu fyrir starfsmanna- og vinahópa þar sem hægt er að bjóða upp á veitingar eftir ferðir, allt eins og hentar hverjum hópi.

Á www.blackbeachtours.is er að finna nánari upplýsingar um allar ferðir og verð. Ef um hópa er að ræða er best að óska eftir tilboðum með tölvupósti á info@blackbeachtours.is eða með því að hafa samband í síma 556-1500.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum