fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
Fréttir

Mislingar í Garðabæ: „Vonandi náum við tökum á þessu sem allra fyrst og að hefta útbreiðslu“ 

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 5. mars 2019 17:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barn á leikskólanum í Hnoðraholti í Garðabæ hefur verið greint með mislinga. Þetta staðfesti framkvæmdarstjóri Hjallastefnunnar í samtali við blaðamann. Samband hefur verið haft við sóttvarnalækni og langflesta foreldra.

„Börn sem eru ekki bólusett verða heima næstu tvær vikur og í sem minnstu samneyti við almenning og þá sérstaklega óbólusetta einstaklinga.

Það er gert til að koma í veg fyrir smit í leikskólanum og að það smiti út frá sér.“  

Barnið sem veiktist var aðeins á einum kjarna af nokkrum á leikskólanum en í samráði við sóttvarnalækni var sú ákvörðun tekin að gera ráðstafanir fyrir öll börn leikskólans, sem ekki hafa verið bólusett.

„Svo höldum við foreldrum upplýstum um hverju þau eigi að leita eftir og hvert þau eigi að snúa sér ef það kemur upp grunur um að þau séu smituð.

Vonandi náum við tökum á þessu sem allra fyrst og náum að hefta útbreiðslu.“ 

Börn á Íslandi eru ekki bólusett fyrir mislingum fyrr en við 18 mánaða aldur, Hnoðraholt er dagheimili og leikskóli með börn á aldrinum 9 mánaða til 4 ára sem heyrir undir Hjallastefnuna og dvelja þar um 80 börn.

Landlæknir áréttar mikilvægi bólusetninga á vef sínum:

Rétt er að minna á að mislingar eru með mest smitandi sjúkdómum sem þekkjast. Engin meðferð er til við sjúkdómnum og eina fyrirbyggjandi meðferðin felst í bólusetningu sem veitir meira en 95% vörn. Þetta minnir á mikilvægi þess að halda hér uppi góðri þátttöku í bólusetningum. Bólusetning gegn mislingum er við 18 mánaða og 12 ára aldur.

Hægt er að bólusetja börn frá 6 mánaða aldri en vörn bólusetningarinnar er óviss á aldrinum 6−12 mánaða. Litlar líkur eru á vernd ef bólusett er fyrir 6 mánaða aldur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?
Fréttir
Í gær

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd