fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Pressan

Kennari nam nemanda sinn á brott: Í gær var hann dæmdur í fangelsi

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 17. janúar 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tad Cummins, fyrrverandi gagnfræðaskólakennari í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur verið dæmdur í fangelsi.

Tad þessi var dæmdur fyrir að nema fimmtán ára stúlku, sem var nemandi hans, á brott árið 2017. Þau yfirgáfu Tennessee en um það bil mánuður leið áður en lögreglu tókst að hafa hendur í hári hans.

Tad var dæmdur í tuttugu ára fangelsi en saksóknarar höfðu farið fram á 30 ára fangelsisdóm. Hann viðurkenndi sök í málinu og fóru verjendur hans fram á tíu ára fangelsi. Ástæða þess að dómurinn var jafn þungur og raun ber vitni er sú að Tad fór með stúlkuna út fyrir ríkismörk Tennessee og til Kaliforníu..

Svo virðist vera sem Tad hafi ætlað að hefja ástarsamband með stúlkunni sem kom frá brotnu heimili. Hún hafði bæði verið vanrækt og misnotuð á heimili sínu.

Þegar Tad og stúlkun flýðu frá Tennessee hafði honum þegar verið vikið úr umræddum skóla. Það gerðist eftir að samnemandi stúlkunnar sá þau kyssast. Mánuði síðar voru þau farin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Les farsíminn hugsanir þínar?

Les farsíminn hugsanir þínar?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notar þú samfélagsmiðla mikið? – Þá erum við með góðar fréttir fyrir þig

Notar þú samfélagsmiðla mikið? – Þá erum við með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varpar ljósi á skuggahliðar Benidorm: „Svo eru hótelin hérna hinum megin við götuna“

Varpar ljósi á skuggahliðar Benidorm: „Svo eru hótelin hérna hinum megin við götuna“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stórhuga olíufurstar í Dúbaí – Ætla að byggja nýjan flugvöll fyrir 5.000 milljarða

Stórhuga olíufurstar í Dúbaí – Ætla að byggja nýjan flugvöll fyrir 5.000 milljarða
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vísindamenn segja þessa æfingu geta lengt lífið og að allir hafi tíma fyrir hana

Vísindamenn segja þessa æfingu geta lengt lífið og að allir hafi tíma fyrir hana
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sumir eigendur iPhone hafa fengið að sofa út síðustu daga, alveg óvart

Sumir eigendur iPhone hafa fengið að sofa út síðustu daga, alveg óvart