fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Doktorar fengu gullmerki – Forsetinn viðstaddur

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 1. desember 2018 13:30

©Kristinn Ingvarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sextíu og þrír doktorar tóku í morgun við gullmerki Háskóla Íslands að viðstöddum forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á árlegri Hátíð brautskráðra doktora í Hátíðasal skólans. Doktorarnir eiga það sameiginlegt að hafa brautskráðst frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2017 til 1. desember 2018 og er þetta í áttunda sinn sem Háskólinn heiðrar doktora frá skólanum með þessum hætti.

Háskóli Íslands hefur í á annan áratug unnið að markvissri eflingu doktorsnáms og nú stunda um 600 nemendur slíkt nám við skólann. Í námi sínu og með framlagi til kennslu og rannsókna innan skólans leggja doktorsnemar mikið af mörkum, bæði til íslensks samfélags og í eflingu Háskólans sem alþjóðlegrar rannsóknastofnunar. Þetta sést m.a. á góðum árangri skólans í birtingu vísindagreina í alþjóðlegum tímaritum og stöðu hans á tveimur áhrifamestu matslistunum yfir bestu háskóla heims, Times Higher Education World University Rankings og Shanghai University Rankings.

Doktorsnemar, í samstarfi við leiðbeinendur sína, leggja sömuleiðis sín lóð á vogarskálarnar í leit hins alþjóðlega vísindasamfélags að lausnum við brýnustu viðfangsefnum samtímans. Afrakstur rannsókna doktorsnema er hins vegar ekki aðeins ný þekking á fjölmörgum sviðum heldur geta verkefni þeirra leitt til stofnunar nýrra sprotafyrirtækja sem auðga íslenskt atvinnulíf. Það skiptir því miklu máli fyrir íslenskt samfélag að hafa öflugan rannsóknaháskóla sem stuðlar að því að Ísland sé samkeppnisfært í vísindum, nýsköpun og atvinnuþróun innan þekkingarsamfélags þjóðanna.

Á athöfninni í dag tóku doktorsnemar frá öllum fimm fræðasviðum Háskóla Íslands við gullmerki skólans, alls 24 karlar og 39 konur. Það er til marks um hversu alþjóðlegur Háskóli Íslands er orðinn að 44 prósent doktoranna, sem brautskráðust á tímabilinu 1. desember 2017 til 1. desember 2018, eru með erlent ríkisfang. Sá hópur kemur víða að, frá 19 löndum Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Enn fremur braustskrást fimm doktoranna með sameiginlega doktorsgráðu frá Háskóla Íslands og erlendum háskóla. Við þetta má bæta að alls munu tæplega 60 nemar ljúka doktorsprófi á árinu 2018 og verður heildarfjöldi doktora sem brautskráðst hefur frá Háskóla Íslands frá upphafi á sjöunda hundrað í lok árs.

Hefð er fyrir því að forseti Íslands ávarpi brautskráða doktora við athöfnina í Hátíðasal og færði Guðni Th. Jóhannesson doktorunum bæði hamingjuóskir og hvatningarorð í ræðu sinni í dag. Þá flutti Skafti Ingimarsson, doktor í sagnfræði, ávarp fyrir hönd nýbrautskráðra doktora.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hildur stórhuga rétt fyrir kosningar – Svona sér hún borgina fyrir sér á næstu áratugum

Hildur stórhuga rétt fyrir kosningar – Svona sér hún borgina fyrir sér á næstu áratugum
Fréttir
Í gær

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Í gær

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum
Fréttir
Í gær

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“