Wayne Rooney brast í grát eftir sinn síðasta landsleik í gær. Hann kvaddi þá enska landsliðið í sigri á Bandaríkjunum.
Rooney lék þarna 120 landsleik sinn en hann er markahæsti leikmaður í sögu liðsins.
Það var umdeilt að Rooney skildi fá leikinn enda er talsvert síðan að hann hætti með landsliðinu.
Leikmenn liðsins voru þó ánægðir með að fá að kveðja hann enda Rooney einn besti leikmaður í sögu þjóðarinnar.
Eftir leik hélt Rooney ræðu í klefanum þar sem hann brast í grát, kveðjustund sem tók á.