Þrautaganga Arons Jóhannssonar framherja Werder Bremen heldur áfram og hann fór í aðgerð í dag.
Meiðsli Arons á ökkla voru þannig að hann fór undir hnífinn og verður frá í þrjá mánuði.
Aron hefur verið ótrúlega óheppinn með meiðsli síðustu ár og aldrei náð almennilegu flugi.
Hann kom sterkur inn á síðustu leiktíð eftir löng meiðsli en hefur síðan verið mikið meiddur.
,,Aron hefur verið í vandræðum með ökklann og við vonum að þessi aðgerð taki alla verki í burtu, það er mikilvægt að hann nái sér aftur,“ sagði Frank Baumann hjá Bremen.