fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Fjölskyldan minnist Snædísar: Vangeta heilbrigðiskerfisins varð henni að aldurtila

Hjálmar Friðriksson
Fimmtudaginn 25. október 2018 13:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nánasta fjölskylda Snædísar Gunnlaugsdóttur segir í minningargrein sem birtist í Kvennablaðinu að hún hafi svipt sig lífi vegna mistaka íslenska heilbrigðiskerfisins. Hún hafi verið með skjaldkirtilsvanda sem hafði í för með sér gríðarlega þjáningu.

Systkini Snædísar eru þau Hrafn Gunn­laugs­son kvik­mynda­gerðarmaður, Þor­vald­ur Gunn­laugs­son stærðfræðing­ur og Tinna Gunn­laugs­dótt­ir leik­kona. Foreldar þeirra eru Gunnlaugur Þórðarson hæstaréttarlögmaður, sem lést árið 1998, og Herdís Þorvaldsdóttir leikkona sem lést árið 2013.

Snædís var lögfræðingur að mennt og vann ötullega að umhverfismálum, sérstaklega skógrækt og landgræðslu. Snædís var búsett á Kaldbak við Húsavík. Hún eignaðist þrjú börn með fyrrum eiginmanni sínum Sigurjóni Benediktssyni: Sylgju Dögg, Hörpu Fönn og Benedikt Þorra. Þau öll skrifa undir greinina sem birtist á vef Kvennablaðsins í dag.

Brotthvarfið verði einhverjum til hjálpar

„Þó sumir kalli þetta kveðju er þetta ekki mín hinsta kveðja til þín. Við nutum þess að vera saman, vinna saman, hlæja saman, gráta saman, deila og kýta í 42 ár. Ég veit að þú vildir alltaf, að allt sem við gerðum kæmi einhverjum eða einhverju til góða. Látum skyndilegt brottkall þitt vera einhverjum til hjálpar, einhverjum lexía, víti til varnaðar. Þín kveðja til okkar er heldur ekki nein hinsta kveðja. Þú lifir með okkur í minningunni,“ segir þau.

Þau minnast hennar sem sannkölluðum gleðigjafa. „Hvað þarf til að taka lífið frá fallegri yndislegri manneskju. Manneskju sem hafði áræði og kraft og kjark langt yfir meðaltal. Manneskju sem var vel menntuð og gáfuð, kát og glöð, sannkallaður gleðigjafi, lagði út í fyrirtækjarekstur meðfram vinnu sinni, og nýtti ómældan tíma í sjálfboðaliðastörf við skógrækt, uppgræðslu, leiklist og bara að lifa lífinu,“ segir í greininni.

Sársauki, kvalir og ónýtt kerfi

Lélegt heilbrigðiskerfi hafði þó sín áhrif. „Jú, það þurfti sársauka, óendanlegar kvalir, margra ára vanlíðan, ónýtt heilbrigðiskerfi, lata lækna. Þú varst mikil leikkona en hlutverk þitt sem verkjalaus einstaklingur lékstu of vel. Þú blekktir okkur öll, og á endanum gafst þú upp, gafst endanlega upp á þessari baráttu við kerfi sem er ekki til fyrir sjúklinga, og sparkar í sjúklinga sem þurfa sífellt að leika sig heilbrigða til að mark sé á þeim tekið,“ segir í greininni.

Síðar var Snædís greind með skjaldkirtilsvanda. „Skjaldkirtillinn er okkur lífsnauðsynlegur. Fari hann úr skorðum fer lífið úr skorðum. Þetta ættu sérfræðingar í faginu að vita. Hver einstaklingur hefur sín einkenni, en kerfið tekur nú ekki mark á því og setur alla í sömu gryfjuna. Snædís varð alvarlega veik fyrir tveimur árum og á einhvern undarlegan hátt endaði hún sem liðið lík án þess að öll þessu voðalegu miklu vísindi gerðu eitt eða neitt til að létta þjáningar hennar, lækna hana. Skjaldkirtillinn var fjarlægður þó engin merki um illkynja mein væri að finna. Eftirfylgni var engin. Tilllitsemi og nærgætni ekki til,“ segir í greininni.

Sagt að fara á Vog

Snædís reyndi að fá hjálp frá fjórum læknum á um tveimur árum. „Enginn, enginn hvorki nennti eða vildi hjálpa henni að neinu gagni. Hún var hunsuð og sagt að þetta væri svona og hinsegin. Þetta væri bara eðlilegt. En það læknaði ekki neitt. Kvalirnar og svartnættið bara jókst. Hyldýpið sogaði til sín. Sortinn helltist yfir hana. Síðasti læknirinn sem hún heimsótti á þessu 24 mánaða tímabili sagði henni að skrá sig inn á Vog hjá SÁÁ og það myndi duga. Hún Snædís mín hvorki reykti né drakk áfengi og notaði ekki lyf til að komast í einhverja vímu. Þetta voru síðustu tilraunir hennar til að fá lækningu. Kerfið sjúklingavæddi hana skipulega. Og örugglega,“ segir í greininni.

Snædís tók svo eigið líf nóttina 22. október. „Í kveðjubréfi til okkar sem syrgjum hana lýsir hún þrautargöngu sinni og vanmætti, vangetu lækna og heilbrigðiskerfis, óendanlegum kvölum, hyldýpi sem enginn á að þurfa upplifa. Meðferð við skjaldkirtilsvanda er vissulega flókin og krefst kunnáttu og nærgætni. Enginn sinnti henni Snædísi minni. Hún var farin að trúa því að hún væri ómöguleg og ekki hægt að lækna hana. Hún Snædís Gunnlaugsdóttir var hvorki geðveik né móðursjúk, því síður kvörtusjúk eða fæddur sjúklingur. Í okkar augum er hún hetja með ótrúlegt viljaþrek,“ segir í minningargreininni.

Fjölskylda Snædísar bendir að lokum á samtökin Skjöldur. „Allir sem telja sig búa við skjaldkirtilsvanda verða að finna einhvern sem vill og getur hjálpað þeim. Meðferðarúrræðin í fræðunum eru mörg. Það er læknanna að finna þau réttu. Það ætti að vera þeirra starf. Lesið ykkur til, kynnið ykkur málin, notið reynslu annarra.

Ég syrgi minn besta vin.

Ekki láta syrgja ykkur.

Heimasíða Skjaldar, samtaka um skjaldkirtilsvanda er full af upplýsingum og þaðan er hægt að komast lengra. Ekki láta bugast.

Bálför Snædísar fer fram í kyrrþey mánudaginn 29. október n.k. að hennar ósk, en kveðjuhóf í hennar anda verður að Kaldbak við Húsavík í maí næstkomandi og þangað eru allir velkomnir.

Þeim sem vildu minnast hennar er bent á bankareikning Skjaldar:

0526-26-550500 með kennitölu 550514-1250“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Origi kallar þetta gott
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Bjarg virði ekki nýju lögin um gæludýrahald – „Fólk er bara mjög hvumsa yfir þessu“ – Bjarg segist fara eftir lögunum

Segir að Bjarg virði ekki nýju lögin um gæludýrahald – „Fólk er bara mjög hvumsa yfir þessu“ – Bjarg segist fara eftir lögunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi í Taílandi

Segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi í Taílandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“