Arsene Wenger, fyrrum stjóri Arsenal, segir að þýska landsliðið þurfi á Mesut Özil að halda.
Özil ákvað að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir HM í sumar þar sem Þýskaland féll úr leik í riðlakeppninni.
Wenger biðlar til Joachim Low, landsliðsþjálfara Þýskalands, og vonar að hann fái Özil til að taka fram skóna á ný.
,,Ég held að Germany þurfi á Özil að halda og ég vona að Low sannfæri hann um að snúa aftur,“ sagði Wenger.
,,Özil er frábær fótboltamaður og var alls ekki versti leikmaður þýska landsliðsins á HM.“
,,Ég elskaði það ekki að hann hafi dregið sig úr hópnum því Þjóðverjar virða hvað hann hefur afrekað.“