fbpx
Föstudagur 26.desember 2025
433Sport

Völsungur segist hafa fengið hótunarbréf frá KSÍ – ,,Starfsmaður KSÍ hrópaði í símann að við værum lygarar“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 13. september 2018 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Völsungur er ósáttur með KSí og aga- og úrskurðarnefnd sambandsins eftir atvik sem kom upp á dögunum.

Rangur maður liðsins var sendur af velli gegn Huginn í 2. deildinni.

Huginn vann leikinn 2-1 en stigin töpuðu fyrir Völsung voru dýr enda er liðið í toppbaráttu.

Meira:
Völsungur með harðorða yfirlýsingu í garð KSÍ – ,,Dómarinn eyddi því sönnunargögnum um rauða spaldið“

Völsungur hefur gefið út aðra yfirlýsingu um málið sem er í heid hér að neðan en það var Helgi Ólafsson sem dæmdi leikinn.

Völsungur harmar viðbrögð KSÍ

Í kjölfar yfirlýsingar okkar í Völsungi, símhringinga úr höfuðstöðvum KSÍ í kjölfarið þar sem við erum úthrópaðir og nú síðast hreint og klárt hótunarbréf frá KSI þar sem okkur er gefin vika í að bera hönd fyrir höfuð okkar, viljum við árétta að enginn frá Völsungi er að ráðast persónulega á einn eða neinn. Dómari leiksins gerir vissulega mistökin og það er leitt. Við sárvorkennum honum að vinnuveitendur hans hjá sambandinu hafi ekki stutt hann og aðstoðað betur í kjölfar umræddra grundvallarmistaka. Auðvitað bar honum að skila inn skýrslunni eins og hann dæmdi leikinn. Annað er ólöglegt. Nú fær Völsungur tölvupóst á mánudeginum eftir leikinn um að skrifstofa KSÍ hafi í samráði við dómarann skráð skýrsluna vitlaust. Að Freyþór Hrafn Harðarson, leikmaður Völsungs, hafi bara fengið gult en ekki rautt.

Freyþór Hrafn Harðarson var rekinn út af á Seyðisfirði ranglega og um það verður ekki deilt. Allir eru sammála um það. Bæði lið, dómarar, eftirlitsdómari og KSÍ. Völsungur þurfti að leika hluta leiksins einum færri. Á þeim tíma skorar Huginn sigurmark. Tölvupóstur á mánudegi breytir engu þar um þó einhverjir á skrifstofu KSÍ telji sig vera að gera einhverjum greiða með að skrá leikskýrsluna vísvitandi vitlaust til að „hjálpa Völsungi“ svo leikmaðurinn fari ekki í bann. Skaðinn var skeður.

Mega allir á skrifstofu KSÍ hafa áhrif á það hvernig leikskýrslur eru skráðar?

Á þeim sólarhring sem leið frá leiknum og þangað til skýrslan var sett inn af dómara leiksins hefði KSÍ getað aðstoðað dómarann við að gera það sem rétt er. Senda inn skýrsluna af leiknum eins og hann var dæmdur. Senda svo með aukaskýrslu um leiðréttingu ef mistök voru augljóslega gerð og að dómari vildi ekki að leikmaðurinn fengi leikbann. Bara ekki breyta leikskýrslunni því það er bannað!

Ekkert af þessu var gert og því fór sem fór. Í þrjár vikur beið Völsungur eftir því að KSÍ myndi vinna úr
þessum leiðu mistökum og leiðrétta það sem ranglega var gert. Niðurstaða aga-og úrskurðarnefndar var í takt við önnur vinnubrögð í þessu máli. Viðbrögð KSÍ við fréttatilkynningunni eru í takt við nánast einu samskiptin sem hafa farið fram milli KSÍ og Völsungs á þessum þremur vikum. KSÍ gerir Völsung að „vonda kallinum“ í málinu og skammar nú félagið fyrir að „ráðast á ungan dómara í fjölmiðlum með svívirðingum“. Starfsmaður skrifstofu KSÍ hefur hringt í forsvarsmann Völsungs og beinlínis hrópað í símann að við séum lygarar og aldrei hafi nokkurt félag tekið dómara af lífi opinberlega jafn svívirðilega. Hér eru eðlilega flestir orðlausir.

Forsvarsmenn knattspyrnudeildar Völsungs ítreka því hér með að persóna Helga, dómara leiksins hefur á engan hátt neitt með málið að gera. Hér er ekki verið að ráðast gegn honum sem persónu. Allt tal í þá áttina úr höfuðstöðvum KSÍ verður því vísað rakleiðis aftur til föðurhúsanna því sambandið hefur haft nógan tíma til að standa með sínum dómara og aðstoða við að leiðrétta grundvallarmistök.

Fyrir hönd knattspyrnudeildar Völsungs
Haukur Eiðsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Viss um að Arsenal muni ekki klúðra titlinum – Aðrir byrjaðir að trúa

Viss um að Arsenal muni ekki klúðra titlinum – Aðrir byrjaðir að trúa
433Sport
Fyrir 2 dögum

Uppsögn hjá KSÍ til umræðu – „Maður veltir fyrir sér hvort að þetta sé endilega rétta skrefið“

Uppsögn hjá KSÍ til umræðu – „Maður veltir fyrir sér hvort að þetta sé endilega rétta skrefið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útlit fyrir að Manchester verði áfangastaður Semenyo

Útlit fyrir að Manchester verði áfangastaður Semenyo
433Sport
Fyrir 2 dögum

Myndband: Lenti á hálsinum og missti meðvitund eftir mikla dramatík undir lokin – Stálheppinn að hafa ekki meiðst alvarlega

Myndband: Lenti á hálsinum og missti meðvitund eftir mikla dramatík undir lokin – Stálheppinn að hafa ekki meiðst alvarlega
433Sport
Fyrir 2 dögum

Slot: „Þetta eru mikil vonbrigði“

Slot: „Þetta eru mikil vonbrigði“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Alves að kaupa félag og ætlar að spila sjálfur

Alves að kaupa félag og ætlar að spila sjálfur
433Sport
Fyrir 3 dögum

Þetta eru leikirnir sex sem Bruno Fernandes missir af

Þetta eru leikirnir sex sem Bruno Fernandes missir af
433Sport
Fyrir 3 dögum

Amorim ætlar að umturna þessari stöðu næsta sumar

Amorim ætlar að umturna þessari stöðu næsta sumar