Ísam hefur fest kaup á öllu húsinu
Miklar breytingar verða á þeirri starfsemi sem er nú í Korputorgi. Íslenska-Ameríska (Ísam) hefur fest kaup á húsinu og ætlar að flytja alla starfsemi fyrirtækisins í það á komandi árum.
Korputorg sem er eitt stærsta atvinnuhúsnæði landsins er 45.550 fermetrar að stærð. Til samanburðar er Smáralind ríflega 62 þúsund fermetrar.
Fjallað er um kaupin í ViðskiptaMogganum í dag. Meðal þeirra fyrirtækja er heyra undir Ísam eru kexverksmiðjan Frón, Myllan, niðursuðuverksmiðjan Ora og Fastus auk þess sem Ísam flytur inn ótal vörutegundir. Þá flytja allar skrifstofur Ísam á Korputorg.