Ryskingar leigubílstjóra við Leifsstöð náðust á upptöku. Þar má sjá bílstjóra ýta kollega nokkuð harkalega á meðan hann hrópar „hommi“ og fleiri ókvæðisorðum. Samkvæmt heimildum DV voru mennirnir áður vinir en ekki er vitað af hverju slettist uppá vinskapinn. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Atvikið átti sér stað nú í vikunni.
Sá sem sleit vinskapnum óttaðist að sinn gamli vinur myndi beita stuðbyssu sem hann taldi að hann geymdi í bíl sínum. Því hafi hann tilkynnt lögreglu um meint vopn og varð það til þess að upp úr sauð við Leifsstöð. Sá sem kallar „hommi“ í myndbandinu ku vera eigandi stuðbyssunnar.
DV hefur rætt við eiganda leigubílastöðvarinnar sem leigubílstjórinn starfaði hjá. Segir hann að bílstjórinn hafi nýlega tekið til starfa hjá stöðinni. Honum hafi verið sagt upp vegna málsins og sagði eigandinn að ógnandi hegðun eins og sjá má í myndbandinu sé ekki liðin. Því hafi þurft að grípa til aðgerða.
Lögreglan á Suðurnesjum staðfesti að málið sé í skoðun en vill ekki greina frá hvort að stuðbyssa hafi verið gerð upptæk. „Það komu tvær kvartanir nýlega vegna leigubílstjóra. Það hafa engar skriflegar kærur komið til okkar, en þetta eru mál sem eru í skoðun. Ég get staðfest að það eru tvö mál í skoðun,“ segir Sigurgeir Sigmundsson hjá lögreglunni á Suðurnesjum.