fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Eyjan

Ekvador gerir fríverslunarsamning við EFTA – Helstu útflutningsvörur eru grænmeti, ávextir og gull

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 25. júní 2018 15:15

Guðlaugur Þór ásamt Pablo Campana, ráðherra utanríkisviðskipta í Ekvador, (lengst til vinstri) ásamt ráðherrum EFTA ríkjanna og framkvæmdarstjória EFTA.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekvador skrifaði í dag undir fríverslunarsamning við Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA). Samningnum er ætlað að létta hindrunum og auðvelda viðskipti og fjárfestingar á milli Ekvador og aðildarríkja EFTA, sem eru Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein. Skrifað var undir samninginn á Hólum í Hjaltadal í morgun. Ráðherrafundur EFTA hófst á Sauðárkróki í gær, sunnudag, og mun honum ljúka á morgun. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands.

Helstu útflutningsvörur Ekvador eru ávextir og grænmeti, þá helst bananar, en auk þess gull, kakóvörur, rósir, fiskiolíur, rækjur og önnur sjávarföng. Útflutningsverðmæti til ríkja EFTA nam á síðasta ári um 110 milljónum Bandaríkjadala. Innflutningur Ekvador frá EFTA-ríkjunum nam á sama tíma um 120 milljónum dala, en meðal helstu innflutningsvaranna eru lyf, áburður, úr, lækningatæki og ýmis konar efni.

Í samningnum milli Ekvador og EFTA eru kveðið á um markaðsaðgengi fyrir vörur og þjónustu, upprunamerkingar, hollustuhætti og afnám tæknilegra hindrana í milliríkjaviðskiptum. Pablo Campana, ráðherra utanríkisviðskipta í Ekvador, er staddur hér á landi og skrifaði undir samninginn í morgun. Hann segir samninginn mikilvægan fyrir alla aðila.

„Samningurinn við EFTA opnar nýtt markaðssvæði fyrir nær allar útflutningsvörur Ekvador, markaðssvæði sem telur um 14 milljónir íbúa. Það eru góðar fréttir fyrir útflytjendur, framleiðendur og fjárfesta, bæði í Ekvador og innan EFTA-ríkjanna. Viðskipti milli þessara aðila eru nú þegar mikil og við gerum ráð fyrir að þau verði enn meiri eftir undirritun samningsins. Ekvador er land tækifæranna og með samningnum stígur Ekvador stórt skref nær helstu velmegunarríkjum Evrópu. Þessu til viðbótar hafa verið sett ný lög um erlendar fjárfestingar í Ekvador sem munu veita réttarvissu, fyrirsjáanleika og skattaívilnanir vegna erlendra fjárfestinga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Atli Þór ráðinn til Pírata

Atli Þór ráðinn til Pírata
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?