fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Pressan

Rúmlega 200 flóttamenn drukknuðu í Miðjarðarhafi á tveimur dögum

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 22. júní 2018 06:53

Sýrlenskir flóttamenn. Mynd:Wikimedia Commons/ Mstyslav Chernov

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um 220 flóttamenn eru taldir hafa drukknað undan ströndum Líbíu á þriðju- og miðvikudag. Þar með hafa að minnsta kosti 1.000 manns drukknað í Miðjarðarhafi það sem af er ári. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, segir þetta vera skelfilegt og biður um að gripið verði til aðgerða til að koma í veg fyrir frekara manntjón.

Trébátur sökk við strendur Líbíu á þriðjudaginn. Talið er að um 100 manns hafi verið um borð. Fimm fundust á lífi og var bjargað af líbísku strandgæslunni. Sama dag sökk gúmmíbátur með 130 manns innanborðs. 60 var bjargað af sjómönnum frá Líbíu og þeir fluttir aftur til Líbíu.

Á miðvikudaginn hvarf bátur með um 50 manns innanborðs og er talið að allir hafi drukknað.

Helmingi færri hafa reynt að komast til Evrópu yfir Miðjarðarhaf í ár miðað við sama tíma í fyrr að sögn Sameinuðu þjóðanna. Frá ársbyrjun og fram í miðjan júní komu um 40.000 manns til Evrópu yfir Miðjarðarhaf en í fyrra voru það um 80.000 manns. Þá höfðu um 2.000 manns drukknað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn fjórum kærustum sínum – Ein man bragðið af byssuhlaupinu

Dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn fjórum kærustum sínum – Ein man bragðið af byssuhlaupinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bankabækur Dana tútna út

Bankabækur Dana tútna út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sumir eigendur iPhone hafa fengið að sofa út síðustu daga, alveg óvart

Sumir eigendur iPhone hafa fengið að sofa út síðustu daga, alveg óvart
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ertu að taka inn lyf að staðaldri? – Þá er þetta gott að hafa í huga

Ertu að taka inn lyf að staðaldri? – Þá er þetta gott að hafa í huga
Pressan
Fyrir 3 dögum

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari
Pressan
Fyrir 5 dögum

Manstu eftir Joseph Kony? Nú eru málaliðar Pútíns á eftir honum

Manstu eftir Joseph Kony? Nú eru málaliðar Pútíns á eftir honum
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“