fbpx
Þriðjudagur 21.maí 2024
Pressan

Sex danskir piltar grunaðir um að hafa hópnauðgað 13-15 ára stúlkum – Lögreglan leitar fleiri fórnarlamba

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 18. júní 2018 06:58

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sex piltar, 15 til 17 ára, sitja nú í gæsluvarðhaldi á Sjálandi í Danmörku en þeir eru grunaðir um að hafa hópnauðgað tveimur 14 ára stúlkum. Lögreglan telur að þeir hafi einnig hópnauðgað tveimur stúlkum til viðbótar en þær eru 13 og 15 ára. Lögreglan vill ekki útiloka að fórnarlömbin séu fleiri.

Piltarnir neita allir sök í málunum. Þrír þeirra eru grunaðir um að hafa hópnauðgað annarri 14 ára stúlkunni einu sinni og þrír þeirra eru grunaðir um að hafa hópnauðgað hinni þrisvar sinnum. Lögregluna grunar að fleiri barnungar stúlkur hafi orðið fyrir barðinu á piltunum. Henrik Gunst, lögreglufulltrúi, staðfesti við Ekstra Bladet að piltarnir hafi líklega nauðgað tveimur 13 og 15 ára stúlkum til viðbótar og vildi ekki útiloka að fórnarlömbin væru fleiri.

Þrír piltanna hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan 1. júní. Í einu málanna eru þeir grunaðir um að hafa þvingað 14 ára stúlku inn í herbergi í fjölbýlishúsi í Kokkedal og afklætt hana. Einn þeirra nauðgaði henni síðan á meðan annar hélt henni og sá þriðji tók ofbeldið upp á myndband. Þetta gerðist um miðjan apríl. Piltarnir vildu ekki tjá sig fyrir dómi þegar gæsluvarðhaldskrafa yfir þeim var tekin fyrir.

Þetta mál kom lögreglunni á sporið hvað varðar hina 14 ára stúlkuna. Einn þeirra fyrrnefndu er grunaður um að hafa tekið þátt í tveimur hópnauðgunum á henni. Á fimmtudaginn voru þrír piltar til viðbótar handteknir vegna þessa máls.

Fyrsta ofbeldisverkið gagnvart henni átti sér stað í október á síðasta ári þegar fimm piltar ruddust inn í íbúð í Kokkedal og þvinguðu stúlkuna inn í herbergi þar sem þrír þeirra neyddu stúlkuna til munnmaka á meðan hinir tveir tóku ofbeldið upp á myndband. Í nóvember var stúlkan aftur beitt ofbeldi þegar fjórir piltar afklæddu hana og héldu höfði hennar föstu á meðan þeir neyddu hana til munnmaka. Síðan nauðguðu tveir þeirra henni. Daginn eftir beittu fjórir piltar þessa sömu stúlku aftur ofbeldi í sólbaðsstofu í verslunarmiðstöð. Hún var neydd til munnmaka og tveir þeirra nauðguðu henni síðan. Tveir til viðbótar reyndu að nauðga henni en hún náði að verjast þeim. Tveir piltar til viðbótar voru viðstaddir ofbeldið og tóku upp á myndband. Ekki er vitað hverjir þeir eru.

Rannsókn lögreglunnar er á frumstigi en eins og fyrr segir óttast hún að fórnarlömbin séu mun fleiri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

NASA ætlar að koma upp sviflest á tunglinu

NASA ætlar að koma upp sviflest á tunglinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stærðfræðikennarinn Rebecca Joynes sakfelld fyrir kynferðisbrot gegn unglingum – Varð þunguð eftir 15 ára dreng

Stærðfræðikennarinn Rebecca Joynes sakfelld fyrir kynferðisbrot gegn unglingum – Varð þunguð eftir 15 ára dreng
Pressan
Fyrir 6 dögum

Meintur raðnauðgari handtekinn eftir 24 ár á flótta

Meintur raðnauðgari handtekinn eftir 24 ár á flótta
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ökumaður í hörmulegu bílslysi í Flórída á ekki von á góðu

Ökumaður í hörmulegu bílslysi í Flórída á ekki von á góðu
Pressan
Fyrir 1 viku

Stakk vinkonu sína 500 sinnum

Stakk vinkonu sína 500 sinnum
Pressan
Fyrir 1 viku

„Klikkaðasta hugmyndin sem nokkur hefur nokkru sinni fengið“ – Gæti bjargað okkur í þriðju heimsstyrjöldinni

„Klikkaðasta hugmyndin sem nokkur hefur nokkru sinni fengið“ – Gæti bjargað okkur í þriðju heimsstyrjöldinni