fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Vafasamt met féll í Reykjavík klukkan níu í morgun       

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 29. maí 2018 09:56

Reykjavik cityscape in Iceland

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta er met sem við viljum ekki og vonum svo sannarlega að langur tími líði þar til það verður slegið á nýjan leik. Klukkan níu í morgun féll úrkomumet í Reykjavík – aldrei hefur rignt jafn mikið í maímánuði og nú.

Þetta kom fram í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun þar sem rætt var við Ólaf Þór Árnason, veðurfræðing á Veðurstofu Íslands. Gamla metið var frá árinu 1989 en í maímánuði það ár var úrkoman 126 millimetrar. Klukkan níu í morgun hafði hún mælst 127,8 millimetrar. Tekið skal fram að nýr mánuður gengur ekki í garð fyrr en á föstudag og því gæti enn bæst við í úrkomuna.

Ólafur sagði, að því er RÚV greinir frá, að veðrið þessa vikuna væri að mörgu leyti skárra en í síðustu viku þó metið vafasama hafi fallið í morgun. Hlýrra loft sé yfir landinu og þannig muni íbúar á Norður- og Austurlandi fá sól og blíðu í dag og næstu daga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana
Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“
Fréttir
Í gær

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi
Fréttir
Í gær

Hrönn: „Ertu ekki bara þreytt?“ – Fólk með þennan ósýnilega sjúkdóm mætir enn fordómum

Hrönn: „Ertu ekki bara þreytt?“ – Fólk með þennan ósýnilega sjúkdóm mætir enn fordómum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tíu grísir drápust eftir innbrot á Kjalarnesi: „Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi“

Tíu grísir drápust eftir innbrot á Kjalarnesi: „Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi“