Rafa Benitez gæti snúið aftur til Ítalíu og tekið við Napoli en það er Football Italia sem greinir frá þessu í dag.
Benitez stýrði Napoli á árunum 2013 til 2015 en hann hætti með liðið til þess að taka við Real Madrid.
Hann stýrir í dag liðið Newcastle og hefur hann gert góða hluti með liðið síðan hann tók við þeim árið 2016.
Benitez kom liðinu upp um deild á síðustu leiktíð og í dag situr Newcastle í tíunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er öruggt um áframhaldandi veru í deildinni.
Spánverjinn var vinsæll hjá Napoli á sínum tíma en hann vann Coppa Italia með liðið á sínu fyrsta tímabili.