fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Eyjan

Framsókn og fjölmiðlarnir – löng saga

Egill Helgason
Miðvikudaginn 3. júní 2015 11:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framsóknarflokkurinn hefur lengi átt í ákveðnum erfiðleikum á fjölmiðlamarkaði.

Hann þurfti lengi að horfa upp á yfirburðastöðu Morgunblaðsins sem studdi Sjálfstæðisflokkinn. Og það þarf svosem ekki að fara í launkofa með að fjölmiðlar hafa almennt ekki verið sérlega hliðhollir flokknum.

Framsókn átti Tímann. Hann gekk meðan Sambands íslenskra samvinnufélaga naut við. Stundum var reynt að poppa Tímann upp til að ná til fólks sem bjó í Reykjavík. Ég tók sjálfur þátt í tveimur slíkum tilraunum, þegar við Illugi Jökulsson vorum á Helgar-Tímanum, Elías Snæland var ritstjóri og Páll Magnússon fréttastjóri.

Og svo var það NT ævintýrið nokkrum árum seinna. NT stóð fyrir Nýja-Tímann, ritstjóri var Magnús Ólafsson, þarna var heilmikið af flinkum blaðamönnum, en verkföllin 1984 fóru eiginlega með þessa útgáfu. Helgi Pétursson tók við sem ritstjóri, ég man að ég fékk uppsagnarbréf undirritað af honum. Ekki bar ég neinn kala til hans vegna þess.

Enn var reynt þegar Dagur, sem hafði komið út á Akureyri, var gerður að dagblaði undir heitinu Dagur-Tíminn. Bak við það stóð Eyjólfur Sveinsson, þáverandi eigandi DV, en þarna voru líka Framsóknarmenn áberandi. Ritstjórarnir voru Stefán Jón Hafstein og Birgir Guðmundsson. Alþýðublaðið var líka lagt inn í þetta púkk – ég tengdist því pínulítið, hafði verið beðinn um að verða ritstjóri Alþýðublaðsins, en hafnað því. Þá hefði ég orðið síðasti ritstjóri þess merka fjölmiðils. Í staðinn fékk Össur Skarphéðinsson það hlutverk.

Þessi nýi Dagur varð ekki sérlega langlífur, hann var aldrei við alþýðuskap, en átti ágæta spretti.

Milli Framsóknar og Stöðvar 2 er talsverð saga. Halldór Ásgrímsson átti nokkuð gott sambandi við eigendur Stöðvar 2, fyrst Jón Ólafsson og síðar Jón Ásgeir Jóhannesson. Ég held að forystusveit Framsóknar hafi upplifað ákveðna huggun í því, sérstaklega eftir að eigendur Stöðvar 2 tóku að fjarlægjast Sjálfstæðisflokkinn.

En það breytir því ekki að upplifun Framsóknarflokksins hefur lengi verið sú að fjölmiðlar séu honum andsnúnir. Þetta getur tekið á sig furðulegar myndir eins og í fréttastjóramálinu á RÚV 2005.

Eftir hrun hefur það reyndar gerst að Morgunblaðið er mjög hliðhollt Framsóknarflokknum – og stundum er eins og séu meiri kærleikar þar á milli en milli Moggans og forystu Sjálfstæðisflokksins. Síðasta vendingin eru svo kaupin á DV, sem aftur komast í hámæli í tengslum við stórundarlegt fjárkúgunarmál. Það er svosem ekkert vitað hvaða tengsl eru þar á milli, en undir nýjum eigendum er blaðið augljóslega hliðhollara Framsóknarflokknum en áður var – það fer ekki á milli mála. Það er hins vegar dálítið ofmælt að þarna hafi verið keyptur „krítískur“ fjölmiðill til að eyðileggja hann. DV var komið á hausinn og túverðugleiki blaðsins var mjög lítill eftir að kom í ljós að ritstjórinn hafði tekið við peningum á laun frá einum voldugasta útgerðarmanni landsins.

En það væri semsagt ekki í fyrsta skipti að Framsókn fer á stúfana til að bæta hlut sinn í fjölmiðlum. Hingað til hefur það tekist misjafnlega. Það er heldur ekki auðvelt að halda úti fjölmiðli sem er hollur ríkjandi stjórnvöldum en á um leið að falla almenningi í geð.

Screen Shot 2015-06-03 at 11.21.32

NT var ein tilraun Framsóknarmanna til að ná stöðu á fjölmiðlamarkaði. Þar vann vösk sveit blaðamanna, en allt kom fyrir ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Stjórnarandstaðan fær að heyra það fyrir að kvarta undan vinnu á sunnudegi – „Háttvirtir aumingjar“

Stjórnarandstaðan fær að heyra það fyrir að kvarta undan vinnu á sunnudegi – „Háttvirtir aumingjar“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Oddný var ekki látin vita að hún yrði ráðherra – „Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði“

Oddný var ekki látin vita að hún yrði ráðherra – „Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði“