fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Áslaug sakar Sjálfstæðisflokkinn um svindl: „Leikreglum er breytt og uppstillingarvaldið sett í fárra hendur“

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 23. febrúar 2018 15:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Mynd: DV

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Áslaug Friðriksdóttir, sem fékk ekki sæti á framboðslista flokksins fyrir komandi borgarstjórnakosningar, skrifar á Facebooksíðu sína í dag. Þar segir hún farir sínar ekki sléttar í samskiptum við Sjálfstæðisflokkinn:

 

„Kæru vinir, enginn getur gengið að neinu vísu í pólitík. Góður stuðningur í hefðbundnum prófkjörum hefur litla þýðingu, þegar leikreglum er breytt og uppstillingarvaldið sett í fárra hendur.“

Þarna á Áslaug við ákvörðunina um leiðtogakjör, sem tekin var af  stjórn Sjálfstæðisfélagsins Varðar í sumar, en Áslaug var því mótfallin líkt og hún greindi frá í viðtali við RÚV í ágúst:

„Ég hef auðvitað mikinn áhuga á að bjóða mig fram í fyrsta sæti en mér hugnast ekki sú aðferð sem lögð er fram af Verði að fara í þetta leiðtogaprófkjör. Ég held að þetta sé of þröng leið. Við Sjálfstæðismenn eigum bara að halda okkur við opið lýðræðislegt prófkjör eins og flokkurinn hefur gert að undanförnu. Það hefur reynst bara mjög vel.“

 

Áslaug lenti í 2. sæti í leiðtogakjöri flokksins fyrr í vetur og óskaði eftir 2. sæti á lista, þrátt fyrir vitneskju um að meirihluti kjörnefndar styddi hana ekki, nema að Eyþór Arnalds styddi þá tillögu:

 

„Mér eru það vissulega vonbrigði að eiga ekki sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Ég óskaði eftir að skipa 2. sæti listans, þrátt fyrir að vita að ég hefði ekki stuðning meirihluta kjörnefndar nema nýr leiðtogi styddi þá tillögu. Svo reyndist ekki vera og því fór sem fór.“

 

Þá segist Áslaug ætla að sitja áfram út kjörtímabilið og segist lítast vel á nýjar konur á framboðslistanum, enda séu þær skoðanasystur hennar í mörgum málum:

 

„Vonandi munu þær fylgja skoðunum sínum eftir og kanna öll mál með opnum huga. Flokkurinn þarf ekki á því að halda að allir séu steyptir í sama mót.“

 

Ekkert hefur bólað á yfirlýsingu frá borgarfulltrúanum Kjartani Magnússyni, sem einnig var bolað í burtu af Sjálfstæðisflokknum, en hann fékk ekki sæti á listanum heldur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins