fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433

Slakasta lið deildarinnar stöðvaði Liverpool

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 22. janúar 2018 21:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Swansea sem situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar vann öflugan 1-0 sigur á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Liverpool hafði ekki tapað í 18 leikjum í röð í öllum keppnum þegar liðið heimsótti Liberty völlinn í kvöld.

Liverpool vann Manchester City í síðustu umferð deildarinnar og bjuggust flestir við öruggum sigri Liverpool.

Það var hins vegar ekki raunin, Alfie Mawson varnarmaður Swansea skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik.

Virgil van Dijk varnarmaður Liverpool skallaði knöttinn til hans eftir hornspyrnu og Mawson þakkaði fyrir sig með því að setja boltann framhjá Loris Karius.

Liverpool skapaði sér ekki mörg dauðafæri í leiknum og var liðið ólíkt því sem það hefur sýnt síðustu vikur.

Liverpool situr í fjórða sæti með 47 stig en Swansea er á botni deildarinnar með 20 stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði