fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
433Sport

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 15:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikmenn Breiðabliks og þjálfarateymi munu ferðast til Vestmannaeyja á sunnudag með þyrlu. Þetta hefur 433.is fengið staðfest.

Þyrlan mun ferja leikmenn og teymi Breiðabliks frá Bakka í Landeyjum og yfir til Eyja. Líklega þarf þyrlan að fara 5-6 ferðir til að koma öllum yfir.

Flogið verður með HeliAir Iceland/Reykjavík Helicopters og er þetta mesta lúxus þyrla landsins, 6 sæta Bell407 GXP.

Blikar kjósa að gera þetta frekar en að ferðast með Herjólfi kvöldið áður en Herjólfur siglir til Þorlákshafnar þessa dagana. Siglingin tekur að minnsta kosti rúma þrjá klukkutíma og hafa því Blikar ákveðið að fara þessa leið frekar en að taka bátinn.

Breiðablik heimsækir ÍBV í Bestu deild karla á sunnudag en þyrlan mun svo ferja leikmenn og teymið aftur upp á land að leik loknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield
433Sport
Í gær

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar
433Sport
Í gær

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum