
Markvörður Real Zaragoza, Esteban Andrada, hefur verið úrskurðaður í 13 leikja bann eftir að hafa slegið andstæðing í leik gegn Huesca í spænsku B-deildinni.
Andrada fékk rautt spjald í uppbótartíma leiksins en hljóp í kjölfarið að fyrirliða Huesca, Jorge Pulido, og sló hann í andlitið.
Puñetazo de Esteban Andrada a Jorge Pulido tras ser expulsado en el Huesca – Real Zaragoza pic.twitter.com/vjNQcCfb0q
— Lorenzo Gelardo (@LorenzoGelardo_) April 26, 2026
Atvikið leiddi til hópslagsmála og voru tveir leikmenn til viðbótar reknir af velli í kjölfarið.
Spænska knattspyrnusambandið dæmdi Andrada í 12 leikja bann fyrir höggið auk eins leiks banns vegna rauða spjaldsins.
Andrada hefur beðist afsökunar á hegðun sinni og sagðist sjá eftir atvikinu.