
Íslendingalið Brann kveikti heldur betur á sér eftir erfiða byrjun í norsku úrvalsdeildinni og skellti toppliði Tromsö 0-5.
Brann var aðeins með fjögur stig eftir sex leiki fyrir leikinn í gær en Tromsö með 19 stig á toppnum.
Kristall Máni Ingason tók hins vegar yfir leikinn snemma og skoraði þrennu fyrir Brann í fyrri hálfleiknum, áður en liðið bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik.
Freyr Alexanderson er auðvitað þjálfari Brann. Jón Dagur Þorsteinsson byrjaði einnig leikinn í gær en Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson eru á meiðslalistanum.
Hér að neðan má sjá þrennu Kristals, sem og önnur mörk í gær.