

Jackson Irvine, varafyrirliði ástralska landsliðsins, hefur gagnrýnt harðlega ákvörðun FIFA um að veita Donald Trump friðarverðlaun sambandsins.
Irvine segir að ákvörðunin grafi undan mannréttindastefnu FIFA og geri lítið úr þeirri ímynd sem sambandið vilji skapa sér sem jákvætt afl í samfélaginu. Hann sagði verðlaunaveitinguna „gera gys að“ stefnu FIFA um mannréttindi og samfélagslega ábyrgð.
Verðlaunin voru afhent af forseta FIFA, Gianni Infantino, við drátt fyrir HM karla í desember þar sem Trump var heiðraður fyrir það sem FIFA kallaði framlag hans til „friðar og einingar“.
Irvine, sem leikur með FC St. Pauli og hefur lengi verið ötull talsmaður mannréttindamála, sagði slíkar ákvarðanir færa knattspyrnuna fjær rótum sínum og samfélaginu sem íþróttin á að þjóna.
Ummæli hans hafa vakið mikla athygli og bætast við gagnrýni frá fleiri aðilum innan knattspyrnuheimsins á umdeilda verðlaunaveitingu FIFA.