fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
433Sport

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 13:30

John Stiles.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

John Stiles, sonur Nobby Stiles, fyrrum leikmanns Manchester United, segist viðboðið yfir afstöðu enska knattspyrnusambandsins í tengslum við heilaskaða leikmanna.

Samkvæmt skjali sem var lekið úr dómsmáli er sambandið sagt hafna því að almennt sé hægt að tengja skalla í knattspyrnu við heilaskaða og telji sig ekki bera almenna ábyrgð á velferð leikmanna.

Nobby Stiles, sem vann HM 1966 með enska landsliðinu, lést árið 2020 eftir að hafa glímt við heilabilun. Krufning leiddi í ljós að hann þjáðist af CTE, hrörnunarsjúkdómi tengdum endurteknum höfuðhöggum.

John Stiles hefur barist fyrir því að fjölskyldur fyrrum leikmanna fái fjárhagslegan stuðning vegna sjúkdóma sem tengjast ferlinum.

Knattspyrnusambandið segir að tengsl milli skalla og langtíma heilaskaða séu enn til rannsóknar, en sambandið hafi tekið skref til að bæta öryggi leikmanna, meðal annars með nýjum leiðbeiningum um skalla og heilahristing.

„Með allar þessar sannanir sem við höfum núna, þá þarf að horfast í augu við þetta. Við höfum barist í fimm ár síðan pabbi dó til að fá hjálp,“ segir John Stiles, ómyrkur í máli.

„Ég veit að það dró pabba minn til dauða að skalla boltann ítrekað. Knattspyrnuyfirvöld vilja bara ekki horfast í augu við það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum
Fundarhöld um helgina
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nýr búningur United lekur á netið

Nýr búningur United lekur á netið
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“
433Sport
Í gær

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“
433Sport
Í gær

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra
433Sport
Í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær
433Sport
Í gær

Vilja ráða Bellamy í starfið

Vilja ráða Bellamy í starfið
433Sport
Í gær

Manchester United staðfestir tíðindin

Manchester United staðfestir tíðindin
433Sport
Í gær

Umdeild kona bauð 16 klukkustunda kynlífsmaraþon – Þetta var það eina sem hann þurfti að gera í staðinn

Umdeild kona bauð 16 klukkustunda kynlífsmaraþon – Þetta var það eina sem hann þurfti að gera í staðinn