fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
433Sport

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“

433
Föstudaginn 1. maí 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Skúli Jónsson, gjarnan kallaður Jói Skúli, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni og með þeim var einnig Hörður Snævar Jónsson.

FH hefur verið í brasi í upphafi móts í Bestu deild karla og er aðeins með eitt stig eftir fjóra leiki.

„Það er ótrúlegt hvað viðhorf manns til liðs getur breyst á skömmum tíma. Ég fór á leik Þórs og FH í Boganum fyrir mót í bikarnum og FH-ingar voru geggjaðir í seinni hálfleik. Það var pressubolti út um allt og Þórsarar voru í tómum vandræðum. Tómas Orri var með stjórn á allri pressu og allt upp á tíu, og hann hefur svosem haldið sínu striki,“ sagði Hörður.

video
play-sharp-fill

„En svo hefur þetta verið afskaplega flatt, miklar róteringar á liðinu. Þessi breyting með Ísak Óla að henda honum á bekkinn, fyrirliðanum þínum. Mér fannst það skrýtið. Þeir hljóta að vera að hugsa að þeir þurfi 2-3 leikmenn inn í þetta, þetta er ekki nógu gott.“

Jóhann var ómyrkur í máli um stöðuna.

„Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út. Við sáum þennan Valsleik og þeir voru ekki góðir þar heldur.

En FH-ingar skiptast í fylkingar, einhverjir eru jafnvel farnir að falla á sverð en aðrir vilja bara sækja 4-5 gæja núna. Þetta verður fróðlegt að sjá.“

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield
433Sport
Í gær

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar
433Sport
Í gær

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum
Hide picture