fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433

Jose Mourinho: Frábært fyrir okkur ef Sanchez kemur

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 15. janúar 2018 22:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United tók á móti Stoke City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en leiknum lauk með 3-0 sigri heimamanna.

Antonio Valencia kom United yfir snemma leiks áður en Anthony Martial tvöfaldaði forystu United á 38. mínútu og staðan því 2-0 í hálfleik.

Romelu Lukaku gerði svo út um leikinn á 72. mínútu og lokatölur því 3-0 fyrir heimamenn.

Jose Mourinho, stjóri United vildi ekki tjá sig um það hvort Alexis Sanchez væri að koma til félagsins.

„Stoke mætti hingað og reyndi að spila fótbolta. Þeir voru óhræddir við að spila boltanum og gerðu okkur erfitt fyrir í fyrri hálfleik,“ sagði Mourinho.

„Ég horfði ekki á Liverpool vinna City, sá leikur breytir engu. Þeir eru með góða forystu, ég þekki þessar aðstæður vel, örlögin eru í þeirra höndum.“

„Ég hef ekkert að segja um Alexis Sanchez, hann er leikmaður Arsenal og ef hann verður þar áfram er það frábært fyrir þá. Ef hann kemur til okkar er það frábært fyrir okkur og ef hann fer eitthvað annað er það frábært fyrir þá,“ sagði hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Samfélagið í áfalli eftir skyndilegt fráfall fjölskylduföður – Vinsæll lögmaður og fyrrum vonarstjarna í fótbolta

Samfélagið í áfalli eftir skyndilegt fráfall fjölskylduföður – Vinsæll lögmaður og fyrrum vonarstjarna í fótbolta
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Áhugaverð reglubreyting tekur gildi fyrir HM

Áhugaverð reglubreyting tekur gildi fyrir HM
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni