fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fókus

Barnaverndarnefnd skerst í leikinn á Hátíð ungu kynslóðarinnar

Poppgargið að æra börnin

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 19. júní 2016 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 1967 stóð Guðlaugur Bergmann fyrir Hátíð ungu kynslóðarinnar. Þar var valin stúlka sem „fulltrúi ungu kynslóðarinnar“ og „hljómsveit ungu kynslóðarinnar“. Þessi hátíð var samstarfsverkefni Karnabæjar og Vikunnar. Frekar dauft var yfir fegurðarsamkeppni Íslands á þessum tíma og var hin nýja keppni hugsuð sem mótvægi við hana. Hér skyldi meira lagt upp úr persónuleika stúlknanna, hvernig þær töluðu, hvaða hæfileika þær hefðu og þess háttar. Verðlaunin voru að komast á vandaðan tungumálaskóla í Bretlandi.

„Bara enn eitt bisnessbragðið“

Því var haldið fram að þarna væri bara „einn eitt bisnessbragðið hjá Gulla Bergmann“. Um það fórust honum svo orð:

„Reyndar er ég þeirrar skoðunar að vel heppnað bisnessbragð sé þannig að á því hagnist bæði viðkomandi og þjóðin samtímis. Þess vegna á frelsi einstaklinganna að vera í því fólgið að gefa mönnum möguleika á að skapa og búa til eitthvað sem gagnist þeim sjálfum og heildinni. Annað mál er að gefa mönnum eða fyrirtækjum óheftar hendur til að draga til sín fjármagn og völd á kostnað annarra.“

Hljómsveitarkeppnin var nýstárleg, en Guðlaugur fékk mann frá Apple-fyrirtæki Bítlanna til að koma hingað til lands til að hlusta á íslenska poppið og dæma um gæði þess. Um líkt leyti gerðist Guðlaugur umboðsmaður Trúbrots/Hljóma erlendis, sem þá kölluðu sig Thor’s Hammer. Ekki tókst þó að gera Thor’s Hammer heimsfræga frekar en aðrar íslenskar hljómsveitir þess tíma.

Hátíðin fór fram á tveimur kvöldum. Árið 1968 var keppnin haldin í Austurbæjarbíói og voru ýmis tónlistaratriði flutt, þar á meðal söng María Baldursdóttir með Hljómum og stúlkurnar úr keppninni árið áður sýndu fatnað úr Karnabæ. Þá sagði frá því í auglýsingu að meðal dagskráratriða yrði „Hárgreiðslu „show““ sem væri „ótrúleg sýning“. Hljómsveitirnar sem öttu kappi voru Hljómar, Flowers og Óðmenn.

Barnaverndarnefnd skerst í leikinn

Þetta sama ár reyndu barnaverndarnefnd og lögregla að koma í veg fyrir hátíðina. Formaður nefndarinnar, Sigurlaug Bjarnadóttir, hafði ritað langar greinar í blöðin þar sem hún fann bítlagarginu, síða hárinu og annarri unglingamenningu flest til foráttu. Að mati barnaverndarnefndar var hér um að ræða varasama skemmtun, öskrað og gargað væri á börnin sem yrðu gersamlega tryllt. Lögregla og barnaverndarnefnd vöktuðu alla innganga keppninnar þetta ár, sem varð til þess að keppninni seinkaði. Kynnirinn, Svavar Gests, bað gestina afsökunar á töfunum sem væri til kominn vegna þess að lögregla og barnaverndarnefnd væri að skipta sér af hlutum sem þeim kæmi ekkert við. Salurinn tók undir með Svavari og baulaði á yfirvöldin.

Fulltrúar barnaverndarnefndar og lögreglu æstust verulega við Svavar baksviðs í kjölfarið, steyttu hnefann og viðhöfðu hótanir á borð við: „Þú skalt verða dreginn fyrir lög og dóm, það skal ekki verða önnur svona sýning, við skulum stöðva þetta.“ Svavar svaraði hinum æstu yfirvöldum af mestu rósemi og spurði hvað þau væru eiginlega að gera á staðnum og hvort hann hefði misskilið eitthvað. Hvort þau væru ekki á staðnum til að hjálpa og samgleðjast með unga fólkinu. Ef þetta væri allt saman tómur misskilningur skyldi hann glaður fara fram í sal og leiðrétta það. Fékk Svavars hersinguna frá barnaverndarnefnd og lögreglu með sér upp á svið. Því næst tók hann sér hljóðnemann í hönd og sagði að hér hefði orðið „smámisskilningur“. Hann hefði haldið að barnaverndaryfirvöld hefði komið á staðinn til að trufla skemmtunina en þau væru í reynd komin til að hjálpa og fá að vera með á skemmtuninni. Hann vildi nota tækifærið og biðja barnaverndarnefndina og lögreglu afsökunar og bað áheyrendur að vera svo elskulega að standa upp og klappa fyrir þessu góða fólki frá lögreglunni og barnaverndaryfirvöldum. Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna meðan fulltrúar yfirvalda stóðu skömmustulegir á sviðinu. Þeir létu sig hverfa stuttu síðar.

Samkvæmt frásögn Morgunblaðsins var skemmtunin mjög glæsileg fyrra kvöldið og framkoma áhorfenda kurteisisleg og skemmtileg. Skemmtunin væri forstöðumönnum hennar til mikils sóma vegna vandaðs flutnings og góðrar skipulagningar.

„Lífshættulegar leikfimisæfingar“ Rúnars

Barnaverndarnefnd var verulega misboðið. Síðari skemmtunin var eftir og degi fyrir hana var Guðlaugur kallaður á fund lögreglunnar. Með í för var blaðamaður Morgunblaðsins en blaðið hafði greint ítarlega frá afskiptum barnaverndaryfirvalda af skemmtuninni. Guðlaugur sagðist ekki láta bjóða sér svona framkomu. Hátíð unga fólksins hefði verið vel tekið og fjölmiðlar hrósað framtakinu í hástert sem verið hefði öllum til mikils sóma. Guðlaugur hafði sitt fram og seinni skemmtunin var haldin.

Sagt var að lokaþáttur Hljómasyrpunnar í hljómsveitarkeppninni hafi verið „„æðisgenginn“ og ekki aldeilis „frosinn“ eða „niðurgíraður““. Í Vísi sagði að Rúnar Júlíusson hefði framið allt að því „lífshættulegar leikfimisæfingar“ á sviðinu. Flutningur Óðmanna þótti ekki eins ærslafullur. Sviðsframkoma Shady Owens, hinnar nýju söngkonu, vakti mikla athygli. Flowers tókst ekki að ná fram sömu stemningu og Hljómum, en frá því var sagt að Jónas R. Jónsson hefði staðið sig með mikilli prýði og sömu sögu væri að segja af Karli Sighvatssyni á orgelinu. Eftir fyrra kvöldið voru Hljómar með yfir helming greiddra atkvæða gesta í sal.

Á meðan stúlkurnar gengu um salinn las Svavar Gests upp svör þeirra við nokkrum spurningum sem fyrir þær höfðu verið lagðar. Þær höfðu meðal annars verið spurðar að því hvers vegna ungir menn neyttu áfengis. Og flestar voru þær sammála um svarið – það gerðu þeir til að losna við feimnina.

Hljómar gerðu enn betur seinna kvöldið og fengu alls 658 atkvæði. Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1968 var valinn Soffía Wedholm. Úrslitunum var ákaft fangað og fulltrúi ungu kynslóðarinnar frá árinu áður, Kristín Waage, krýndi arftaka sinn. Í viðtali við Vísi sagði Soffía að Hljómar væri sín eftirlætishljómsveit og fór óneitanlega vel á því.

Áfengislausar skemmtanir

Þessar skemmtanir voru með öllu áfengislausar, en Guðlaugur gerði það að skilyrði, oftast með skriflegu samkomulagi, að hljómarsveitarmenn hefðu ekkert áfengi með í för. Erfitt gat verið að framfylgja þessu banni en Guðlaugur stóð fastur á því.

Árið 1970 rann allur ógóði af keppninni til fræðslu um skaðsemi eiturlyfja, útgáfu fræðslurita, sýninga fræðslukvikmynda um það efni og fleira. Á hátíðinni það ár komu fram Roof Tops, Náttúra, Ævintýri og Tilvera ásamt fleiri skemmtikröftum. Einn frægasti umboðsmaður skemmtikrafta á Norðurlöndum var þá viðstaddur, Knud Thorbjörnssen að nafni, en hann starfaði um þær mundir fyrir Rolling Stones.

Guðlaugur stóð að keppninni í fjögur ár, en árið 1971 var hátíð unga fólksins komin í þann búning að hann vildi ekki lengur taka þátt. Keppnin hófst þá með kampavínsveislu á Hótel Sögu og keppnin um fulltrúa ungu kynslóðarinnar var aftur orðin hrein fegurðarsamkeppni.

Heimildir: Umfjöllun blaðanna og bók Óskars Guðmundssonar: Og náttúran hrópar og kallar.

Höfundur: Björn Jón Bragason

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór á veitingastað Jeremy Clarkson og var ekki hrifinn

Fór á veitingastað Jeremy Clarkson og var ekki hrifinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru