fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Hjálmar Jónsson bjargaði lífi Hjartar: Lá á grúfu og andaði ekki

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Fimmtudaginn 16. júní 2016 12:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var óvíst að Hjörtur Pálmi Guðmundsson myndi vakna úr dái. Hann var að keyra í Kömbunum. Alltof hratt miðað við aðstæður. Það var verið að breikka veginn og Hjörtur missti stjórn á bílnum í lausamöl þegar hann var að taka framúr. „Ég var að keyra eins og vit­leys­ing­ur,“ segir Hjörtur og bætir við: „Mér varð það til lífs að séra Hjálm­ar Jóns­son varð vitni að slys­inu og kom þar fyrst­ur að eft­ir að ég hafði flogið út í móa, lá á grúfu og andaði ekki.“

Hjörtur tjáir sig um hið alvarlega slys í samtali við Morgunblaðið.. Honum var haldið sofandi í tvær vikur á gjörgæslu. Þá tók við endurhæfing. Þegar hún hófst gat hann ekki setið, haldið höfði, kyngt og var kvalinn af taugaverkjum. Tveimur mánuðum síðar eftir stífa endurhæfingu var hann farinn að ganga á ný. Nú er hann farinn að hlaupa tvisvar til þrisvar í viku.

Hjörtur ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu og þá fyrir Hugarfar sem er félag fólks með ákominn heilaskaða, aðstandenda og áhugafólks um málefnið. Segir Hjörtur að hann hlaupi til að reyna laga heilann og fá hjartað til að pumpa blóði og blóðflæði heilans.

Það eru þó nokkrar afleiðingar sem hann glímir við vegna slyssins. Hann hlaut taugaskaða og missti mátt í hægri öxl og í hönd við úlnlið. Hann neyðist því til að hlaupa með höndina í fatla. Þá finnur hann fyrir minnistapi en smám saman eru hinar og þessar minningar að rifjast upp. Skammtímaminnið er þó enn slæmt og langtímaminnið ekki uppá sitt besta.

„Jafn­vægið fór til dæm­is allt úr skorðum, ég hélt ekki höfði og gat ekki gengið eða setið. Ég nota hvert tæki­færi til að æfa jafn­vægið, til dæm­is með því að standa á öðrum fæti á meðan ég bíð eft­ir strætó.“

Hér má lesa ítarlegt viðtal við Hjört eða hjálpa honum hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 3 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“