Hætt komin í fyrrahaust- „Svona reynsla breytir manni“
„Sá dagur, þegar það var inni í myndinni að þetta gæti verið illkynja, er einn erfiðasti dagur sem ég hef lifað og léttirinn, yfir að svo var ekki, dásamlegur. Svona reynsla breytir manni,“ segir María Björk Ingvadóttir, sjónvarpskona og framkvæmda- og rekstrarstjóri fjölmiðlafyrirtækisins N4 sem um þessar mundir er að jafna sig eftir erfið veikindi en blaðra fannst milli lungna hennar í haust. Kveðst hún þakklát „fyrir að hafa fengið að vakna hérna megin.“
Þetta kemur fram í Akureyri Vikublaði. Blaðran sem fannst á milli lungna Maríu Bjarkar var á stærð við tennisbolta og uppgvötvaðist þegar María var í fjallgöngu og fór að finna fyrir óþægindum. Læknar voru fyrst ekki vissir um hvort krabbamein væri á ferðinni.
„Ég fór nánast í andnauð og hélt að ég væri kannski hjartveik. Svo fékk ég aftur áminningu seinna en þá hefur blaðran líklega færst til. Svo ágerðist þetta og í nóvember var ég flutt í flýti með sjúkraflugi suður í aðgerð. Blaðran lá yfir hjartanu, lokaði öðru lunganu og var við að loka vélindanu svo ég átti erfitt bæði með að kyngja og anda.“
Við tók hættuleg átta klukkutíma aðgerð en María Björk segir reynslu sem þessa breyta fólki. „Ég er með 50 sentimetra langan skurð langt aftur á bakið en öðlaðist í staðinn nýtt líf, fór að geta andað með báðum lungum og kyngt og borðað að nýju. Það var ótrúlega sterk tilfinning að horfa í augun á þeim sem bjargaði lífi mínu en það var Akureyringurinn Bjarni Torfason hjartaskurðlæknir sem stýrði aðgerðinni,“ segir hún og bætir við að nú skilji hún þá sem segi að þeir læri að meta allt upp á nýtt eftir reynslu sem þessa.
„Ég hef alltaf verið þakklát fyrir lífið, aldrei verið upptekin af veraldlegu dóti og tel að við séum hérna til að þroskast og verða betri manneskjur og þessi reynsla dýpkaði þá lífssýn mína enn frekar.“
María kveðst vera þakklát fyrir hvern dag, og ákveðin að sjá það góða í sérhverjum. „Það hljómar eins og klisja en núna skil ég þegar fólk segir að lífið sé ekki sjálfgefið. Mér finnst ég hafa unnið marga stóra vinninga í happadrætti lífsins og þetta er einn af þeim,“ segir María Björk en viðurkennir þó að hún hafi ekki enn jafnað sig að fullu eftir veikindin.“