Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var á leik Íslendinga og Portúgala
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi er nýkomin heim frá Frakklandi þar sem hún horfði á sögufrægan leik Íslendinga og Portúgala í St. Etienne.
„Þessi ferð var ákveðin löngu fyrir framboð og til stóð að fara á alla þrjá leikina, en þegar forsetaframboð lá fyrir var samið við fjölskylduna um að fara bara að sjá fyrsta leik Íslands á EM,“ segir Halla.
Spurð um stemninguna á vellinum segir hún: „Engin orð fá lýst því einstaka andrúmslofti sem var bæði fyrir leik og á leiknum sjálfum. Þarna sýndu Íslendingar, inni á velli sem utan, einstaklega fallega samstöðu, sem var svo sterk að flestir héldu að þarna væru að minnsta kosti 30 þúsund Íslendingar, eða 10 prósent þjóðarinnar. Þegar þjóðsöngurinn var sunginn þá hljómaði það líka þannig. Líklega hefur þjóðsöngurinn sjaldan verið sunginn af viðlíka krafti og einlægni í senn. Leikurinn sjálfur var liðinu og stuðningsmönnum til mikils sóma. Við hjónin vorum viðstödd þegar við unnum Hollendinga í Amsterdam í september á síðasta ári og töldum ólíklegt að hægt væri að upplifa aðra eins stemningu og þá. Þetta var jafnvel enn betra og stolt okkar stuðningsmanna áþreifanlegt þegar við horfðum á íslenska liðið leggja stórstjörnur að velli og öðlast virðingu og velvild um allan heim.“
Hvernig var stemningin eftir leikinn?
„Þegar Portúgalar og aðrir höfðu yfirgefið völlinn héldu Íslendingar áfram að syngja og hvetja sitt lið eins og við hefðum sigrað, sem við og gerðum, að komast á EM er sigur í sjálfu sér og jafntefli í þessum leik hreint út sagt ótrúlegur árangur.
Við fjölskyldan lentum í beinni útsendingu hjá BBC, sem hafði tekið viðtal við mig á Íslandi fyrir nokkrum vikum síðan og aftur fyrir leik, en við buðum fréttaritara BBC Sport með okkur á leikinn. Hann sagðist verða að gæta að hlutleysi sínu, en staðreyndin er að hann er orðinn mikill stuðningsmaður Íslendinga, eins og svo margir aðrir. Hann hafði á orði eftir leikinn að Íslendingar hefðu slegið nýjan tón fyrir hegðun stuðningsfólks, söngur og gleði í stað áfloga og ofbeldis. Á flugvellinum á leiðinni heim kom fjöldi fólks til okkar og óskaði okkur til hamingju og tjáði okkur jafnframt að við værum nú uppáhaldslið þeirra á EM. Margir fordæmdu einnig Ronaldo fyrir sín ummæli, sem ekki hæfa stórstjörnu og fyrirmynd.“
Halla er mikill íþróttaáhugamaður, eins og reyndar fjölskyldan öll. „Ég spilaði handbolta og fótbolta með Breiðabliki og við fjölskyldan höfum öll gaman af íþróttum. Björn, maðurinn minn, var öflugur varnarmaður og spilaði með Grindavík í úrvalsdeildinni á sínum tíma. Við kynntumst reyndar í gegnum knattspyrnu, þegar ég var framkvæmdastjóri fótboltaliðsins sem hann spilaði með í Alabama. Við þekktumst í um 8 ár áður en við hófum okkar samband. Sonur okkar spilar fótbolta með Breiðabliki og dóttir okkar æfir fimleika með Gerplu, svo mikið af okkar tíma fer í að fylgja þeim eftir og styðja þau og þeirra lið. Svo er það í raun fjölskylduáhugamál að hvetja íslenskt íþróttafólk til dáða og góðra verka og við reynum að gera sem mest af því.“
Fyrir utan Ísland, hvaða landi heldurðu með á EM?
„Það er erfitt val, ég hef búið víða og kann því mjög vel að meta Ísland og hér vil ég vera. En þar fyrir utan, ætli ég velji ekki Spán, ég tala spænsku og Ramón Calderón, fyrrverandi forseti Real Madrid, er yfirlýstur stuðningsmaður minn.“
Það líður að lokum kosningabaráttunnar og dagskráin hjá Höllu fram að kosningum er þétt, alls kyns fundir og vinnustaðaheimsóknir og svo vitanlega samtöl frambjóðenda í sjónvarpssal síðustu daga fyrir kosningar, sem Halla segir vera mikið tilhlökkunarefni. „Ég veit að kjósendur leggja mikið upp úr því að sjá frambjóðendur tala saman. Ég vona að við fáum meira tækifæri en áður hefur gefist til að horfa til framtíðar og ræða okkar sýn á það samfélag sem við viljum skapa. Ég hef trú á íslenskum kjósendum líkt og íslensku landsliðunum og veit að þeir munu kjósa með haus og hjarta. Umfram allt treysti ég því að allir nýti sér þennan mikilvæga lýðræðislega rétt og mæti á kjörstað, því það skiptir máli hver verður forseti.“