fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
433Sport

Amorim sagður vera að landa mjög stóru starfi

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 19. maí 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ruben Amorim gæti verið á leið aftur í þjálfun aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá Manchester United samkvæmt enskum miðlum.

Portúgalski stjórinn, sem var látinn fara frá Old Trafford í janúar eftir erfitt tímabil, er nú sagður líklegur til að taka við Benfica í heimalandinu. Amorim á að koma í stað José Mourinho sem er sterklega orðaður við endurkomu til Real Madrid.

Mourinho lauk nýverið tímabilinu með Benfica án taps í deildinni en liðið endaði þó aðeins í þriðja sæti og missti af sæti í Meistaradeild Evrópu. Florentino Pérez forseti Real Madrid er sagður vilja fá Mourinho aftur til að laga vandamál innan leikmannahóps spænska stórliðsins.

Rui Costa forseti Benfica hefur því beint sjónum sínum að Amorim sem hann þekkir vel frá fyrri tíð. Amorim lék sjálfur með Benfica áður en hann hóf þjálfaraferil sinn og vann síðar tvo portúgalska meistaratitla með erkifjendum félagsins í Sporting.

Hinn 41 árs gamli Amorim var áður talinn einn efnilegasti þjálfari Evrópu áður en illa gekk hjá honum hjá Manchester United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Chelsea setur allt á fullt til að fá enska landsliðsmanninn

Chelsea setur allt á fullt til að fá enska landsliðsmanninn
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sesko fær langa hvíld og búist við að Carrick geri miklar breytingar

Sesko fær langa hvíld og búist við að Carrick geri miklar breytingar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Mourinho tekur við Real Madrid þrátt fyrir mótmæli frá fyrrum hetju félagsins

Mourinho tekur við Real Madrid þrátt fyrir mótmæli frá fyrrum hetju félagsins
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Kveður sem goðsögn eftir 23 ár

Kveður sem goðsögn eftir 23 ár
433Sport
Í gær

Yfirgefur United eftir fjögur erfið ár

Yfirgefur United eftir fjögur erfið ár
433Sport
Í gær

Rooney baunar á Salah og hvetur Slot til að hafa hann utan hóps

Rooney baunar á Salah og hvetur Slot til að hafa hann utan hóps