

Bruno Fernandes er aðeins einni stoðsendingu frá því að skrifa nafn sitt í sögubækur ensku úrvalsdeildarinnar.
Fyrirliði Manchester United lagði upp mark fyrir Bryan Mbeumo í 3-2 sigri liðsins gegn Nottingham Forest um helgina og er nú kominn með 20 stoðsendingar á tímabilinu. Þar með jafnaði hann met Thierry Henry og Kevin De Bruyne yfir flestar stoðsendingar á einu úrvalsdeildartímabili.
Manchester United á aðeins einn leik eftir á tímabilinu þegar liðið mætir Brighton á útivelli næstu helgi og þar fær Fernandes síðasta tækifærið til að slá metið.
Portúgalinn sagði eftir leikinn að metið myndi þó ekki breyta því hvernig hann spilar.
„Þetta breytir ekki leiknum mínum. Ég mun halda áfram að reyna að skapa færi fyrir liðið mitt og vonandi gerist þetta,“ sagði Fernandes.
Hann viðurkenndi þó að hann væri stoltur af árangrinum óháð því hvort metið félli.
„Ég hef aldrei áður náð 20 stoðsendingum í úrvalsdeildinni. Ég hefði meira að segja verið mjög ánægður með 19,“ sagði miðjumaðurinn.
Fernandes hefur átt frábært tímabil með United og verið lykilmaður í sóknarleik liðsins. Samherjar hans eru einnig sagðir mjög meðvitaðir um metið og vilja hjálpa fyrirliðanum að ná sögulegum árangri í lokaumferðinni.