fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fókus

Ótrúleg breyting – Leit út eins og moldvörpurotta en er núna hið mesta kvennagull

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 6. maí 2026 17:30

Pratt hefur liðið fyrir tennurnar alla ævi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breskur maður sem var hæddur og smánaður vegna tanna sinna er nú orðið hið mesta kvennagull eftir að hann fékk nýjar tennur í Tyrklandi. Breytingin er gríðarleg.

Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.

Maðurinn, hinn 35 ára Johnathon Pratt, var með svo bjagaðar tennur að það háði honum í félagslífinu. Má segja að tennur hans hafi minnt á tennur moldvörpurottu eða hross.

Lenti Pratt í miklu einelti sem barn og þegar hann komst á unglings og fullorðinsár átti hann í erfiðleikum með að kynnast stúlkum.

Tennurnar voru ekki aðeins mikið útlitslegt lýti heldur uxu þær þannig að þær ollu honum miklum kvölum. Liðu stundum margir dagar þar sem hann treysti sér ekki til þess að borða fyrir sársauka.

Brosti aldrei

Í janúar á þessu ári fékk Pratt loksins nóg og bókaði sér ferð til Tyrklands til að láta breyta stellinu. Fór hann í mikla aðgerð þar sem allar tennurnar voru rifnar úr honum og tannplantar settir í staðinn.

Breytingin er ótrúleg eins og myndirnar sýna.

Bólgan var erfiðust.

„Áður en ég fór í aðgerðina ollu tennurnar mér þunglyndi. Ég gat ekki borðað almennilega þar sem ég var svo kvalinn, þetta hafði áhrif á röddina mína og ég brosti aldrei. Ég hef verið lagður í einelt alla ævi, uppnefndur og misst af alls konar tækifærum,“ segir Pratt. „Ég hef verið kallaður hrossakjaftur í mörg ár. Sagt var að ég gæti étið epli í gegnum tennisspaða. Ég hef haldið mig frá stefnumótum af því að konur hafa sagt að tennurnar væru svo slæmar að þær myndu ekki láta sjá sig dauðar með mér.“

Betra en lottóvinningur

Kostnaðurinn var stór hindrun fyrir Pratt. Í Bretlandi hefði aðgerðin kostað 35 þúsund pund, það er um 6 milljónir króna. Í Tyrklandi kostaði þetta hins vegar aðeins 9.500 pund, það er rúma 1,5 milljón króna.

Þurfti hann ekki að hugsa sig um tvisvar. Hann segir að sársaukinn hafi ekki einu sinni verið það mikill, aðgerðin tók einnig innan við 3 klukkutíma. Það versta hafi verið bólgan eftir aðgerðina. En núna lítur hann frábærlega út og segist njóta lífsins.

„Þetta er betra en að vinna í lottóinu,“ segir Pratt. „Fólk horfir á mig eins og venjulega manneskju og það er ótrúleg tilfinning.“

Lygileg breyting á útlitinu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Friends hópurinn græðir enn ótrúlegar fjárhæðir á þáttunum

Friends hópurinn græðir enn ótrúlegar fjárhæðir á þáttunum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone
Fókus
Fyrir 1 viku

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd
Fókus
Fyrir 1 viku

Manstu eftir Ólympíufaranum Raygun? – Hún var að fá leiðinlegar fréttir

Manstu eftir Ólympíufaranum Raygun? – Hún var að fá leiðinlegar fréttir
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt
Fókus
Fyrir 1 viku

Útför Björgvins Halldórssonar fer fram í dag

Útför Björgvins Halldórssonar fer fram í dag