fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fókus

Raunveruleikastjarnan tekur erfiða ákvörðun um framtíðina eftir margar misheppnaðar tilraunir

Fókus
Miðvikudaginn 6. maí 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hyggst nú taka sér hlé frá því að taka lögmannsprófið í Kaliforníu eftir misheppnaða tilraun í fyrra. Heimildir herma að hún hafi sleppt febrúarprófinu og hafi engar áætlanir um að reyna aftur í júlí.

Þeim sem vilja taka prófið er boðið upp á tvær tilraunir á ári. Heimildir herma þó að Kardashian muni ekki ætla að reyna aftur fyrr en árið 2027. Kardashian hefur aðeins tekið lögmannsprófið í Kaliforníu einu sinni. Hins vegar tók hún einnig svokallað „baby bar“ próf í Kaliforníu, sem krafist er til að komast inn í lögfræðinámið, þrisvar sinnum áður en hún stóðst loksins fjórðu tilraun sína árið 2021.

Kardashian, sem leikur lögmann í þáttunum All’s Fair,  játaði í nóvember að hafa fallið á lögmannsprófinu í Kaliforníu eftir tilraun sína í júlí.

„Jæja… ég er ekki lögfræðingur ennþá,“ skrifaði hún á Instagram þegar hún tilkynnti fréttirnar. „Ég leik bara mjög vel klædda konu í sjónvarpinu. Sex ár eru liðin í þessari lögfræðiferð og ég er enn með í þessu þar til ég stend lögmannsprófið. Engar flýtileiðir, engin uppgjöf bara meira nám og enn meiri ákveðni.“

Kardashian sló ekki slöku við lærdóminn þrátt fyrir að vera í sumarfríi.

Í desember sagði Kardashian opinskátt að mistökin hefðu haft mikil áhrif á sjálfstraust hennar.

„Ég tók mér smá tíma til að vinna úr þessu og strax, þegar ég fékk niðurstöðurnar, leið mér ekki vel með það. Mér leið mjög óþægilega og var ekki örugg um tíma,“ sagði Kardashian við Time Magazine. „Maður fær niðurstöðurnar á föstudegi og ég vissi að á sunnudagsmorgni yrðu þær aðgengilegar á netinu. Svo ég vildi nefna það fyrst og láta fólk vita að þetta gekk ekki eins og ég vildi.“

Kardashian opnaði sig áður um námsferil sinn í þætti af Kardashians. Í þættinum sagði hún tárvot frá því að hún hefði orðið fyrir andlegu áfalli vegna erfiðis námsins sem þurfti fyrir prófið.

„Ég ætla alveg að gráta því þetta er helvíti þreytandi,“ sagði hún og sagðist hafa rekist á vegg  í undirbúningnum. „Ég fór í bakinu við lærdóminn og það er eins og í hvert skipti sem ég held að ég hafi náð ákveðnu takmarki, þá er mér kippt tilbaka,“ sagði hún grátklöll og útskýrði að hún gæti varla gengið og varla setið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu
Fókus
Fyrir 1 viku

Manstu eftir Ólympíufaranum Raygun? – Hún var að fá leiðinlegar fréttir

Manstu eftir Ólympíufaranum Raygun? – Hún var að fá leiðinlegar fréttir
Fókus
Fyrir 1 viku

Svali fann ástina í örmum Birnu

Svali fann ástina í örmum Birnu