
Michael Carrick veit en ekki hvort hann fái að stýra Manchester United áfram þrátt fyrir frábært gengi undir hans stjórn.
Algjör viðsnúningur hefur orðið hjá United eftir að Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri í kjölfar brottreksturs Ruben Amorim í byrjun árs.
Liðið hefur unnið tíu af fjórtán leikjum sínum og tryggði í gær sæti í Meistaradeild Evrópu á nýjum leik með sigri á Liverpool.
Það er þó enn ekki ljóst hvort Carrick fái samning umfram þann sem hann er með nú á Old Trafford.
„Þetta er ekki í mínum höndum. Ég er ánægður með stöðuna en við viljum verða betri. Sjáum hvað gerist næst,“ segir hann um stöðu mála.
Carrick og hans lærisveinar eru ekki saddir þrátt fyrir þetta frábæra tímabil.
„Þetta er gott skref á vegferðinni en við viljum meira. Við viljum enda ofar í deildinni.“