

Framboð Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi kynnti í gær stefnuskrá sína og helstu áherslumál fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Kynningin fór fram á Eiðistorgi þar sem frambjóðendur áttu samtal við íbúa og kynntu sýn sína á framtíð Seltjarnarness, eins og segir í fréttatilkynningu.
Líf og fjör ríkti á torginu og sannkölluð kosninga stemning myndaðist þegar frambjóðendur gáfu sig á tal við gesti og gangandi. Þar voru málefni bæjarins rædd, framtíðarsýn framboðsins kynnt og lögð áhersla á beint samtal við fólk um þau verkefni sem brýnast er að ráðast í á næsta kjörtímabili.
„Við viljum vera í nánu sambandi við íbúa, hlusta á það sem þeim liggur á hjarta og setja fram skýr stefnumál um þau verkefni sem brýnast er að ráðast í fyrir bæjarfélagið. Sterkt samfélag byggist á trausti, samtali og sameiginlegri sýn um hvert við viljum stefna,“ segir Kristinn Ólafsson, oddviti framboðsins.

Framboðið stefnir að því að bjóða íbúum málefnalegan, kraftmikinn og samvinnumiðaðan valkost í komandi kosningum, með áherslu á fagleg vinnubrögð, skýra framtíðarsýn og hagsmuni bæjarbúa í forgrunni.
Meðal helstu áherslumála framboðsins eru ábyrg og traust fjármálastjórn, öflugri innviðir og bætt þjónusta við íbúa. Þá leggur framboðið sérstaka áherslu á skólamál, endurbætur á skólahúsnæði, aukinn stuðning við börn og fjölskyldur og betri samfellu milli skóla- og tómstundastarfs. Jafnframt vill framboðið efla samfélagið á Seltjarnarnesi með auknu samtali við íbúa og skýrri sýn á þróun bæjarins til framtíðar.
Af þessu tilefni hefur nýr vefur framboðsins verið settur í loftið, www.xseltjarnarnes.is, þar sem íbúar geta kynnt sér stefnuskrána, frambjóðendur og helstu áherslur framboðsins nánar. Nánari upplýsingar um má finna á www.xseltjarnarnes.is