

Mykhailo Mudryk heldur áfram að vera frá vegna lyfjamáls síns og sú staða hefur nú haft veruleg fjárhagsleg áhrif á fyrrum félag hans, Shakhtar Donetsk.
Samkvæmt stjórnendum Shakhtar gæti úkraínska félagið tapað allt að 26 milljónum punda í árangurstengdum greiðslum sem samið var um þegar Mudryk var seldur til Chelsea fyrir 88 milljónir punda árið 2023.
Greiðslurnar eru háðar því að leikmaðurinn spili og að Chelsea nái ákveðnum árangri, en það hefur ekki gerst á meðan Mudryk er í banni.
Mudryk hefur ekki spilað síðan í nóvember 2024 og var settur í tímabundið bann í desember sama ár eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Hann var síðan formlega kærður í júní 2025.
Framkvæmdastjóri Shakhtar, Sergei Palkin, segir fjárhagslegt tjón félagsins mikið vegna stöðunnar.
Þrátt fyrir það sagðist hann trúa því að Mudryk muni snúa aftur á völlinn þegar málið skýrist.