fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Pressan
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 07:00

Larry Drotleff er talinn hafa losað sig við líkamsleifar föður síns í ágóðaskyni. - Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregla í Ohio hefur leyst gamalt sakamál frá árinu 1998 sem varðar fund á líkamsleifum í tveimur ferðatöskum það ár.

Kennsl voru borin á líkamsleifarnar á sínum tíma og reyndust þær tilheyra 93 ára gömlum manni, Lawrence Drotleff. Ekki tókst að upplýsa frekar um málið fyrr en árið 2024 en þá leiddu athuganir lögreglu til þess að sonur mannsins, Larry Drotleff, sem í dag er 81 árs gamall, var handtekinn og yfirheyrður.

Talið er að Lawrence gamli hafi látist af náttúrulegum orsökum en sonurinn Larry er ákærður fyrir að hafa misþyrmt líkinu og losað sig við líkamsleifar hans. Hann hefur játað að hafa tekið ófrjálsri hendi lífeyrisgreiðslur til gamla mannsins sem héldu áfram að berast inn á reikning hans í mörg ár eftir að hann hvarf.

Hefur Larry verið ákærður fyrir fjársvik og fyrir misþyrmingu á líki. Saksóknari í málinu segir að framferði Larrys lýsi ótrúlegri og sjúklegri græðgi.

Sjá nánar um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést