
Hann var fær læknir og náði góðum árangri við að hjálpa sjúklingum sínum og fólk kom víða að úr Bandaríkjunum til að fá þjónustu hjá honum.
Um miðjan níunda áratuginn ræddi hann við lífsstílsblað og sagði hreinskilnislega að laun hans væru um 80 milljónir á ári en að það lægi mikil vinna að baki þessum launum og það hefði svo sannarlega áhrif: „Ég er góður skurðlæknir en skelfilegur fjölskyldumaður. Árum saman hef ég brugðist sem eiginmaður og faðir því ég set alltaf starfsframann og vinnuna ofar fjölskyldunni,“ sagði hann.
Hann var kvæntur Janet Sutorius í 30 ár. Hún var einnig læknir. En hún var algjör andstaða hans því hún lagði meiri áherslu á fjölskylduna en starfsframann.
Þau eignuðust fjögur börn og þegar hún gekk með það fyrsta ákvað hún að vera heimavinnandi. Það var ekkert mál fjárhagslega því það var mikið að gera á stofunni hjá Darryl. Milljónirnar streymdu inn á bankareikninginn en um leið fór að síga á ógæfuhliðina í hjónabandinu.

Þau skildu 1995 og í kjölfarið varð Darryl mjög þunglyndur. Hann saknaði Janet og barnanna en Janet var ófáanleg til að taka saman við hann á nýjan leik.
Eftir skilnaðinn var eins og Darryl félli ofan í stórt svarthol því andleg heilsa hans var ekki upp á marga fiska.
Hið mikla egó hans laskaðist mjög við skilnaðinn. Hann hitti börnin sína aðra hverja helgi en náði ekki almennilega til þeirra. Eitt sinn sögðu tvö elstu börnin við móður sína að þau kærðu sig ekki um að vera hjá föður sínum. Þau sögðust óttast að hann myndi valda sjálfum skaða eða einhverjum öðrum.
Brúðkaup eftir skamman tíma
Starfssystkini Darryl ráðlögðu honum að finna sér aðra konu, konu sem gæti fært honum lífslöngunina aftur.
En hann hafði verið með sömu konunni í 30 ár og hafði ekki hugmynd um hvernig hann ætti að fara að því að finna sér konu.
Lausnin var að leita til stefnumótafyrirtækis sem sérhæfði sig í að finna konur handa miðaldra og fráskildum körlum sem stóðu vel fjárhagslega.
Darryl þurfti ekki að bíða lengi eftir nýju ástinni. Dante Della Britain, sem var 45 ára og þar með tíu árum yngri en hann, var falleg, aðlaðandi og virtist vera hin eina rétta.
Aðeins fjórum mánuðum eftir að þau hittust í fyrsta sinn gengu þau í hjónaband.
Skömmu eftir brúðkaupið trúði Dante, sem nú hafði tekið upp eftirnafnið Sutorius, vinkonu sinni fyrir því að það væri ekki mikið líf í nýja miðaldra eiginmanninum hennar: „Hann er alveg yndislegur en hann getur ekkert í kynlífinu og hann er alltaf þunglyndur. Hann saknar fjölskyldunnar og það er erfitt fyrir mig að sætta mig við það.“

Það verður að segjast að Dante talaði af reynslu þegar hún ræddi um karlmenn. Hún hafði sagt stefnumótafyrirtækinu og Darryl að hún hefði verið gift einu sinni áður en það var ansi fegruð útgáfa af sannleikanum. Með öðrum orðum sagt, þá laug hún til um þetta sem og um flest sem hún sagði um fortíð sína og einkalíf.
Hjónabandið með Darryl var fimmta hjónabandið hennar og hún hafði aldrei lokið námi sem sálfræðingur eins og hún hélt fram.
Hún hafði hætt í skóla 16 ára. Hún átti sér þann draum að kynnast milljónamæringi sem gæti tryggt henni lúxuslíf.
Það voru ekki miklir peningar í fjórum fyrstu hjónaböndunum. En þrír af eiginmönnunum voru með góðar líftryggingar sem Dante vildi gjarnan komast yfir. Hún gerði því tilraun til að myrða þá alla þrjá en sem betur fer mistókst það.
Þegar hún var 19 ára, giftist hún Joseph Hoeffer, sem var einu ári yngri en hún. Þau eignuðust barn saman en skildu eftir þriggja ára hjónaband. Skömmu fyrir skilnaðinn reyndi Dante að stinga hann til bana en hann lifði árásina af. Hún var dæmd í tveggja mánaða fangelsi og hann fékk forræðið yfir barninu þeirra.
Hún var 24 ára þegar hún gekk í hjónaband í annað sinn, að þessu sinni með blikksmiðnum James Beyer sem var jafn gamall henni. Þau skildu eftir fjögur ár. Hún reyndi að myrða hann í sviðsettu bílslysi en það mistókst en lögreglunni tókst ekki að sanna að hún hefði ætlað að myrða hann.
Hún giftist í þriðja sinn 1990 og að þessu sinni var það James Bassett. Þau skildu eftir níu mánaða hjónaband. Af óþekktum ástæðum reyndi hún ekki að myrða hann.
Fjórði eiginmaður hennar, hinn 29 ára Jorge Britteon, slapp ekki við morðtilraun. Þau giftust 1990 og varði hjónabandið í þrjú ár. Áður en því lauk reyndi hún að myrða hann með því að eitra fyrir honum. Hann veiktist og lagðist upp í rúm til að jafna sig og þá bar hún eld að rúminu og læsti hann inni í svefnherberginu. Hann lifði þetta af og hún var dæmd í átján mánaða fangelsi.
Hún lét alveg ógert að nefna þetta þegar hún kynntist Darryl.
Skammvinn sæla
Dante virtist hamingjusöm á fyrstu mánuðum hjónabandsins með Darryl. Þau fóru í brúðkaupsferð í Karíbahafið og bjuggu á fimm stjörnu lúxushótelum. Síðan dvöldu þau í 14 daga í sumarhúsinu hans í Mexíkó.
Hún fékk jagúar sportbíl í morgungjöf og hún mátti eyða eins miklu og hún vildi af peningunum hans.
En hamingjan varði ekki að eilífu því eftir aðeins fjögurra mánaða hjónaband uppgötvaði Darryl nýja og ansi dökk hlið á eiginkonunni.
Hann sagði henni þá að dóttir hans ætlaði að ganga í hjónaband og að hann myndi að sjálfsögðu greiða kostnaðinn við það. Dante missti alveg stjórn á sér við þetta og sagðist telja að fyrra hjónaband hans og börn tilheyrðu fortíðinni og að hann ætti að slíta öllu sambandi við eiginkonuna fyrrverandi og börnin.
„Þau vilja bara peningana þína,“ heyrði nágranni Dante öskra á Darryl morgun einn þegar hann var að fara í vinnuna.

Viku áður en dró til alvarlegra tíðinda, lenti lögreglumaður í undarlegu atviki á bensínstöð nærri heimili hjónanna. Darryl gekk þar að lögreglumanninum og rétti honum skammbyssu og sagði: „Eiginkona mín, Dante Della Sutorius, á hana. Ég hef ekkert vit á vopnum en mér er illa við að hafa byssuna á heimilinu. Ég held að hún ætli að myrða mig. Hún hefur hótað því tvisvar.“
Darryl réði einkaspæjara til að rannsaka fortíð Dante og það var ekkert smáræði sem hann komst að. Allt það sem hún hafði sagt Darryl reyndist vera uppspuni frá rótum og Darryl fékk versta grun sinn staðfestan.
Einkaspæjarinn sagði honum meðal annars að Dante hefði á sínum tíma verið grunuð um að hafa myrt þáverandi unnusta sinn í Kaliforníu. Líkið fannst aldrei og rannsókn málsins var að lokum hætt. En syndaskráin var samt sem áður löng og hræðileg og Darryl fékk að vita að Dante hefði reynt að myrða þrjá fyrrum eiginmenn sína.
Dauðadómurinn
Eftir átta mánaða hjónaband ákvað Darryl að hann vildi skilnað. Þegar hann sagði Dante þetta skrifaði hann um leið undir sinn eiginn dauðadóm.
Í þessu sama samtali sagði hann að hann ætlaði að breyta erfðaskránni sinni svo Dante myndi ekki erfa eigur hans, hún myndi aðeins fá skitnar 150.000 krónur á mánuði. Það myndi verða stórt fjárhagslegt áfall fyrir Dante sem hafði á þeim skamma tíma, sem hjónabandið hafði varað, vanist lúxuslífi og að þurfa ekki að hugsa um peninga.
Þriðjudaginn 19. febrúar 1996 hafði Darryl bókað morgunfund með lögmanni sínum. Þeir ætluðu að ræða breytingar á erfðaskrá hans en Darryl mætti ekki til fundarins klukkan 07.30 eins og þeir höfðu samið um.
Darryl hafði ætlað að sækja læknaráðstefnu í Detroit daginn áður og því var starfsfólk læknastofu hans ekki órólegt yfir að hann mætti ekki til vinnu.
En þegar hann mætti ekki til vinnu næsta dag og lögmaður hans hringdi klukkan 9 til að spyrja um hann, ákvað ritari Darryl að hafa samband við lögregluna. Bæði af því að Darryl hafði verið þunglyndur undanfarið en einnig vegna þess að vandræðin með Dante höfðu fengið mjög á hann.
Tveir lögreglumenn voru sendir heim til hjónanna og þegar þeir knúðu dyra klukkan 09.20 kom Dante til dyra. Hún sagðist ekki hafa hugmynd um hvar Darryl væri en hleypti lögreglumönnunum inn.
Þegar þeir gengu inn í sjónvarpsherbergið á fyrstu hæð sáu þeir lík Darryl liggja í sófanum og við hlið hans var skammbyssa. Við fyrstu sýn virtist þetta vera sjálfsvíg en raunveruleikinn var allt annar.
Dante þóttist ekkert vita, hvorki að Darryl hefði verið heima og hvað þá að hann væri dáinn. Skipti þá engu þótt krufning sýndi að hann hefði látist 48 klukkustundum áður en lögreglan kom á vettvang.
Fljótlega var ljóst að um morð var að ræða.
Sérfræðingar lögreglunnar slógu því föstu að skotið hefði verið tvisvar úr skammbyssunni. Annað skotið fór í gegnum ennið og hafði banað honum samstundis. Hitt skotið endaði í sófanum og sérfræðingar sögðu að það hefði verið seinna skotið.
Dante gat ekki svarað því hvernig eiginmaður hennar hefði getað skotið úr skammbyssunni eftir að hann lést.
Hún var handtekin grunuð um morð og næstu daga hrúguðust sönnunargögnin gegn „Svörtu ekkjunni“ upp.
Skilaboðin
Tveimur dögum áður en Darryl lést, skildi hann eftir skilaboð á símsvara dóttur sinnar og sagði: „Þið skuluð ekki hringja í Dante og þið skuluð ekki tala við hana. Hún er lífshættuleg og ég held að ég lifi skilnaðinn við hana ekki af. Ekki segja neitt við hana. Haldið ykkur bara langt frá Dante.“
Móðir Dante kom fyrir dóm, þegar réttað var yfir Dante, og dró enga dul á hversu mikið hún fyrirleit dóttur sína: „Það er hreint kraftaverk að hún hafi ekki náð að drepa fleiri.“

Vettvangsrannsókn leiddi í ljós að ekki var um sjálfsvíg að ræða. Blóð á höndum Darryl og staðsetning skammbyssunnar hjá líkinu sýndu fram á það auk þess sem tveimur skotum hafði verið hleypt af eins og áður var nefnt.
Það var 100% öruggt að Darryl hafði ekki skotið sjálfan sig og eiginkona hans var eina manneskjan sem kom til greina að hefði skotið hann.
Hún reyndi að ljúga sig út úr þessu fyrir dómi en það virkaði ekki.
Hún var dæmd í ævilangt fangelsi en átti möguleika á að fá náðun 2014. Því náði hún ekki því hún lést í kvennafangelsi í Ohio í lok nóvember 2010, sextug að aldri.