fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir í lottóinu – „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 10. apríl 2026 11:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lottópotturinn um páskana var sjöfaldur og nam fyrsti vinningur alls 176.505.440 krónum. Tveir heppnir miðaeigendur skiptu með sér pottinum og fá hvor um sig rúmlega 88,2 milljónir króna.

Vinningshafarnir keyptu miðana sína í Lottóappinu, en 40 ára aldursmunur er á þeim og viðbrögðin við vinningnum ólík, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

„Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu,“ sagði annar vinningshafinn aftur og aftur þegar hún fékk gleðisímtalið.

Konan, sem er rúmlega sextug og nýhætt að vinna, sagðist oft hafa velt því fyrir sér í gegnum tíðina hvernig það væri að fá símtal sem þetta.

„Hvaða dagur er í dag?“ spurði hún á meðan hún reyndi að ná utan um gleðifréttirnar. „Þetta er dagur sem ég á aldrei eftir að gleyma.“

Hún sagði vinninginn gjörbreyta öllu fyrir þau og bætti við að börnin myndu líka fá að njóta með þeim.

Hinn vinningshafinn er rúmlega tvítugur og tók fréttunum með meiri yfirvegun. Hann var búinn að sjá vinninginn í appinu og átti því von á símtalinu, en sagðist þó vera feginn að fá endanlega staðfestingu.

Vinningurinn kemur sér afar vel, þar sem hann er einmitt í þeim sporum að vera að koma sér upp eigin heimili.

Ekki lét gleðin þar við sitja, því einnig var dregið í Páskaleiknum þar sem 20 heppnir miðaeigendur hlutu eina milljón króna hver. Búið er að hafa samband við alla vinningshafa sem keyptu miðana sína á netinu, í Lottóappinu eða eru í áskrift.

Þrír vinningsmiðar voru keyptir á sölustöðum og eru tveir þeirra ósóttir. Þeir miðar voru keyptir á eftirfarandi sölustöðum:

N1, Blönduósi – vinningsnúmer 10311609
Fjarðarkaup, Hafnarfirði – vinningsnúmer 10351267

Allar upplýsingar um úrslit Páskaleiksins má finna á lotto.is/urslit/paskaleikur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“
Fréttir
Í gær

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega
Fréttir
Í gær

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum