fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Daníel: „Ég nenni ekki neitt að fara í fangelsi!”

Ritstjórn DV
Föstudaginn 10. apríl 2026 10:00

Daníel Hjörvar Guðmundsson nennir ekki að fara í fangelsi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég vona innilega að löggjafinn sjái sóma sinn í því að leiðrétta þessi 111 ára gömlu mistök,“ segir Daníel Hjörvar Guðmundsson, vínsali, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi kosningar, í aðsendri grein á vef Vísis í morgun.

Þar gerir hann nýfallinn dóm héraðsdóms í máli sem höfðað var gegn Smáríkinu að umtalsefni. Samkvæmt niðurstöðu dómsins var Vilhjálmur Ólafsson, forsvarsmaður Smáríkisins, sakfelldur fyrir að selja þriggja lítra hvítvínsbelju í maí í fyrra.

Í frétt Vísis, sem greindi frá dómnum í vikunni, kemur fram að Vilhjálmur hafi verið sektaður um 100 þúsund krónur. Greiði hann ekki sektina innan fjögurra vikna þarf hann að sæta fangelsisvist í átta daga.

Vandamálið í höndum löggjafans

Daníel byrjar grein sína kaldhæðnislega og segir að eftir langa bið hafi réttlætinu loks verið fullnægt. Eftir ítarlega rannsókn lögreglu, sem fól meðal annars í sér vettvangsathuganir, afskipti af Wolt-sendlum og vörutalningu, hafi komið í ljós að hinir harðsvíruðu glæpamenn hafi verið með yfir 172 vörur af hættulegu fíkniefni – sem sum eru framleidd á Íslandi – til sölu.

„Vilhjálmi var gefið að sök að brjóta gegn meintu einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi eins og það er orðað í 1. mgr. 10. gr. Áfengislaga nr. 75/1998 en þar segir “Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur einkaleyfi til smásölu áfengis.” Einkaleyfið er reyndar svo heilagt að í lögunum má finna undantekningu frá því til handa framleiðenda áfengis en þeim er heimilt að selja áfengi í smásölu á framleiðslustað. Svo er reyndar stærsta áfengisverslun á landinu rekin af þýsku einkafyrirtæki á Keflavíkurflugvelli. Svo má líka kaupa áfengi í smásölu frá erlendum einkafyrirtækjum og fá sent til sín, svo lengi sem áfengið sé erlendis að því er virðist. Geggjað einkaleyfi,“ segir Daníel í grein sinni.

Hann segir að hvað sem líður forsendum dómsins og hvort menn séu sammála þeim eða ekki sé ljóst að vandamálið er í höndum löggjafans.

„Alþingi getur, og á að vera löngu búið að leysa þetta mál. Líkt og hefur fram komið í greinum annarra þá hafa yfir 100.000 Íslendingar valið þessa leið til að nálgast þessa löglegu neysluvöru sem Vilhjálmur er sakfelldur fyrir að selja. Þá hafa önnur fyrirtæki en Smáríkið hafið rekstur í góðri trú og veita viðskiptavinum betri þjónustu en ríkið hefur nokkurn tímann gert og tryggir fjölda fólks atvinnu, þ.á.m. mér.“

Úrelt og glatað fyrirkomulag

Spyr Daníel hvort það sé virkilega í takt við réttarvitund þjóðarinnar að maður sé sakfelldur fyrir að selja löglega neysluvöru á markaði sem rúmlega fjórðungur landsmanna tekur þátt í, án þess þó að hvorki kaupandinn né seljandinn hafi litið svo á að viðskiptin væru ólögleg.

„Það eina sem er fullkomlega skýrt í þessu máli er að það er löngu tímabært að binda enda á þetta úrelta, óskilvirka, og (skoðun höfundar) glataða fyrirkomulag sem komið var á af afturhaldsöflum árið 1915 og var mögulega góð pæling þá ég veit það ekki ég var ekki fæddur. Ég er í það minnsta haldinn þeirri byltingarkenndu hugmynd að fullorðið fólk í frjálsu landi sé treystandi til að ákveða sjálf hvar þau kaupa áfengið sitt.“

Daníel segist að lokum vona innilega að löggjafinn sjái sóma sinn í því að leiðrétta þessi 111 ára gömlu mistök og „binda enda á þetta óvissuástand og leyfa borgurunum einfaldlega að kaupa sitt áfengi þar sem þeim sýnist án þess að venjulegur verslunarmaður eins og ég eigi hættu á því að fara í fangelsi.“

Daníel segir svo að lokum:

„Ég nenni ekki neitt að fara í fangelsi! Og svo líka nenni ég ekki að þurfa að kaupa vínið mitt af ÁTVR af því þeir selja aðallega vond vín.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“
Fréttir
Í gær

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega
Fréttir
Í gær

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum