fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Gabríel Douane fyrir dóm á morgun vegna fjölmargra brota – Notaði armbandsúr sem hnúajárn á fangaverði

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 8. apríl 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalmeðferð verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun í máli sem Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og héraðssaksóknari hafa höfðað á hendur Gabríel Doune Boama. Um er að ræða þrjár ákærur sem felldar eru saman og varða þær fjölmörg meint brot Gabríels.

Hann er í fyrsta lagi sakaður um að hafa ráðist á mann inni í Hagkaupum Skeifunni sumarið 2023 og slegið hann með krepptum hnefa í andlitið svo brotaþoli hlaut af áverka. Brotaþoli gerir kröfu um skaða- og miskabætur að fjárhæð um 1,.750.000 þúsund krónur.

Í sömu ákæru er Gabríel sakaður hótað konu með hníf inni í bíl og rænt með valdi síma af manni. Gerðist það í febrúar árið 2024.

Sjá einnig: Blóðug átök Gabríels við fangaverði – Sagður hafa notað úrið sitt sem hnúajárn

Í sömu ákæru er Gabríel ákærður fyrir nokkur fíkniefnalagabrot.

Í annarri ákærunni er Gabríel ákærður fyrir ofbeldi gegn þremur fangavörðum á Litla-Hrauni þann 2. ágúst árið 2024. Sló hann fangaverðina hnefahöggum og notaði armbandsúr sem hnúajárn.

Gabríel fyrst landsathygli árið 2022 er hann strauk úr haldi lögreglu í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem mál gegn honum var til meðferðar. Hann afplánar núna marga dóma á Hólmsheiði en hann hefur lengi reynt að snúa blaðinu við, halda sig frá neyslu fíkniefna og sinna rapp-tónlistargerð. Hann þótti einnig fyrr á árum vera afar efnilegur körfuboltamaður.

Gabríel var látinn laus úr fangelsi snemma á árinu en var nokkrum dögum síðar handtekinn vegna gruns um að hafa stungið mann með hnífi í miðborg Reykjavíkur.

Sjá einnig: Gabríel Douane grunaður um að stinga mann í miðborginni nokkrum dögum eftir að hann var látinn laus

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“
Fréttir
Í gær

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður var alein við Hlemm – „Út á hvað gengur þetta?“

Sigríður var alein við Hlemm – „Út á hvað gengur þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Baldur leysir Herjólf af tímabundið

Baldur leysir Herjólf af tímabundið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lindex útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka

Lindex útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“