fbpx
Fimmtudagur 30.apríl 2026
Pressan

Þetta eru skýr merki um að heilinn þinn sé að eldast

Pressan
Laugardaginn 4. apríl 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar maður nær fertugsaldri byrjar líkaminn smám saman að afhjúpa að hann er ekki lengur sá sami og áður. Það er hægt að lifa með þessu, þar til maður áttar sig á að þetta á einnig við um heilann. Hann er líklega ekki lengur eins fljótur, sveigjanlegur eða móttækilegur fyrir nýjum skilaboðum eins og hann var á yngri árum.

Þetta kemur lagst illa í suma en þetta þarf nú ekki að vera svo slæmt. Að verða eldri, þýðir einnig að maður horfir á heiminn með meiri ró og reynslu.

Vísindamenn hafa rannsakað hvaða séu fyrstu merkin um að heilinn sé að eldast og niðurstaðan kemur kannski á óvart.

Fortíðarþrá – Eitt fyrsta merkið um að heilinn sé að eldast er vaxandi fortíðarþrá. Áður dreymdi mann mest um framtíðina en nú leitar hugurinn sífellt oftar aftur til fortíðar.

Vísindamenn við Pennsylvania State University í Bandaríkjunum komust að þeirri niðurstöðu að eldra fólk upplifir miklu meiri fortíðarþrá en yngra fólk. Yngstu þátttakendurnir í rannsókninni upplifðu um 60% minni fortíðarþrá en miðaldra þátttakendur. Þeir elstu upplifðu fortíðarþrá um þrisvar sinnum oftar.

Ruglast á nöfnum og orðum – Annað skýrt merki er að maður byrjar að ruglast á nöfnum og orðum. Ekki af því að maður þekki ekki sína nánustu, heldur af því að heilinn þarf lengri tíma til að finna rétta orðið.

Vísindamenn við háskólann í Liége sýndu fram á að fólk á sextugsaldri á erfiðara með að orða nákvæmar lýsingar og að þetta verði greinilegra með aldrinum.

Að læra nýja hluti – Það getur einnig orðið erfiðara að læra nýja hluti. Heilinn missir smám saman hæfileikann til að mynda nýjar tengingar, þekkt sem taugamótanleiki.

Hæfileikinn hverfur þó ekki alveg og það hefur verið sýnt fram á að ef fólk lærir nýja hluti getur það seinkað öldrunarferlinu.

Tímaskyn – Tímaskynið breytist með aldrinum. Brasilískir vísindamenn hafa sýnt fram á að eldra fólki finnst tíminn oft líða hraðar. Ástæðan er að með aldrinum upplifir maður færri nýja hluti og það veldur því að dagarnir renna saman.

Að múltítaska – Með aldrinum verður erfiðara að múltítaska. Viðbragðstíminn verður lengri og það getur orðið erfiðara að halda yfirsýn yfir það sem maður er að gera þegar margt er í gangi samtímis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þess vegna ættirðu ávallt að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina

Þess vegna ættirðu ávallt að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja deilir umdeildri skoðun: Barnafjölskyldur ættu að ganga síðastar um borð

Flugfreyja deilir umdeildri skoðun: Barnafjölskyldur ættu að ganga síðastar um borð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skyndikynnin enduðu skelfilega – Svalamaðurinn var í hefndarhug

Skyndikynnin enduðu skelfilega – Svalamaðurinn var í hefndarhug
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ef þú vilt lifa hamingjusömu lífi eftir sextugt þá skaltu hætta þessu

Ef þú vilt lifa hamingjusömu lífi eftir sextugt þá skaltu hætta þessu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lavrov fer hörðum orðum um Bandaríkin – „Þeir leyna því ekki að þetta snýst um olíu“

Lavrov fer hörðum orðum um Bandaríkin – „Þeir leyna því ekki að þetta snýst um olíu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Norskir hermenn undirbúa sig undir innrás Rússa í nyrsta hluta landsins

Norskir hermenn undirbúa sig undir innrás Rússa í nyrsta hluta landsins