

Rithöfundurinn Sverrir Norland segir viðurstyggilegt að starfsfólk verslana og veitingastaða sé neytt til að betla viðskiptavini um einkunnagjöf á þjónustuna eins og gert er víða í dag. Þjónustan sé einnig alltaf að minnka.
„Ég er staddur á ónefndum flugvelli og settist þar á veitingastað þar sem þjónninn vísaði mér til borðs og benti mér á að skanna QR-kóða, panta mér mat og drykk og borga svo bara í gegnum vefsíðuna,“ segir Sverrir í færslu á samfélagsmiðlum í gær. „Þjónninn útskýrði því í raun fyrir mér að honum væri algjörlega ofaukið, ég gæti gert þetta allt sjálfur.“
Það gerði Sverrir líka, af hind og natni. En síðan kom annar maður með matinn, „flóttalegur á svip og rosalega rjóður í framan, eiginlega bleikur eins og svín á litinn,“ segir hann.
Skömmu síðar hafi fyrri þjónninn birst aftur, feimnislegur á svip, með lítinn pappírsmiða með öðrum QR-kóða. Bað hann Sverri um að gefa þjónustunni einkunn.
„Það voru eiginlega ekki nógu mörg haldbær element í þessari upplifun minni af „þjónustunni“ til að ég gæti með góðu móti metið gæði hennar en ég gaf þeim auðvitað bara tíu,“ segir Sverrir. „Þannig ferst heimurinn: not with a bang but a whimper.“
Rifjar Sverrir einnig upp aðra nýlega sögu af flugvelli, það er þegar hann keypti bangsa í verslun.
„Strax að loknum þeim fjármálagerningi bað afgreiðsludaman mig um að skanna QR-kóða og gefa henni (þ.e. afgreiðsludömunni) einkunn. Fyrir að selja mér einn bangsa,“ segir Sverrir. „Það er auðvitað eitthvað viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini um að staðsetja framlag þeirra til sölunnar á tölulegum skala – en í sannleika sagt hafði ég líka bara ekki tilhlýðilega menntun og þekkingu til að geta metið hversu „vel“ hún seldi mér þennan bangsa á á tíu sekúndum. En ég gaf henni auðvitað bara fullt hús stiga. Framúrskarandi þjónusta.“
Hefur færslan fengið mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum. Margir hneykslast á því á hvaða stað þjónusta í dag sé komin.
„Svona er fólki talin trú um að nútíminn eigi að vera og að þetta rugl séu framfarir,“ segir fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason.
„Eina leiðnin er að yfirgefa sjálfan sig,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens.
„Not with a bang but with a tíu,“ segir rithöfundurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Guðmundur Andri Thorsson.