fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
433Sport

Fékk að vita nafn knattspyrnumannsins sem átti í kynferðislegu sambandi við Binna Glee – „Þetta eru vonbrigði“

433
Sunnudaginn 15. mars 2026 21:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktur sem Binni Glee, vakti athygli á samfélagsmiðlum í byrjun árs er hann opinberaði skilaboð frá íslenskum knattspyrnumanni.

Meira
Binni Glee birtir samskipti sín við íslenskan knattspyrnumann – „Ég á kærustu og ætla ekki að eyðileggja það en við getum hist aftur“

Brynjar nafngreindi manninn ekki en birti skilaboð þar sem kom meðal annars fram að hann ætti kærustu. „Sorry að ég er ekki búinn að senda neitt í nokkra daga sæti. Ég er búinn að vera busy í fótbotlanum og eittthvað. Ég hugsa samt alltaf um þig eftir æfingar,“ skrifar þessi ónafngreindi knattspyrnumaður í skilaboðum til Brynjars.

„Ég þarf samt að vera honest. Ég á kærustu og ætla ekki að eyðileggja það en þú er samt mjög næs og við getum alveg hist aftur og riðið,“ sagði þarna enn fremur og Brynjar lét óánægju sína vegna framkomu mannsins í ljós.

Þetta mál var tekið fyrir í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær. Þar sagði ritstjóri miðilsins, Elvar Geir Magnússon, frá því að hann hafi fengið að heyra nafn knattspyrnumannsins sem um ræðir.

„Ég talaði við mann sem fullyrti hver einstaklingurinn væri, sagði að það væri hundrað prósent staðfest.“

Nafnið var þó alls ekki stórt og spilar aðilinn ekki ofarlega í fótboltanum á Íslandi, eins og einhverjir höfðu getið sér til um.

„Ég ætla ekki einu sinni að segja nafnið. Þetta eru vonbrigði. Það er varla hægt að kalla þetta fótboltamann, hann er búinn að vera að gutla eitthvað í neðstu deildunum,“ sagði Elvar léttur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar