fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Brotist inn á heimili Alberts í gærkvöldi sem býður fundarlaun – Miklum verðmætum stolið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. mars 2026 14:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Albert Guðmundsson leikmaður íslenska landsliðsins og Fiorentina á Ítalíu segir frá því á Instagram að brotist hafi verið inn á heimili hans í gærkvöldi.

Albert skoraði sigurmark Fiorentina af vítapunktinum í blálokin gegn Rakow í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í gærkvöldi. Á sama tíma virðast þjófarnir hafa látið greipar sópa.

„Brotist var inn á heimili mitt í gær og nokkrum verðmætum var stolið, þar á meðal mikilvægum persónulegum eigum,“ segir Albert á Instagram.

„Ef einhver hefur upplýsingar um þá sem bera ábyrgð, vinsamlegast hafið samband við mig eða lögregluna. Í boði eru verðlaun fyrir upplýsingar sem leiða til þess að stolnu munirnir finnast aftur,“ segir Albert.

Því miður er það ekki óalgengt að brotist sé inn hjá knattspyrnumönnum og þjófarnir virðast vita að þar er oft að finna mikil verðmæti á heimilum þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði