fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Ólafur ráðinn upplifunar og gæðastjóri Bestu deildarinnar

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. mars 2026 11:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur toppfótbolti (hagsmunasamtök liða í tveimur efstu deildum í knattspyrnu á Íslandi) hefur ráðið Ólaf H. Kristjánsson í starf upplifunar- og gæðastjóra deildarinnar, en um er að ræða nýtt hlutverk sem styður vaxandi áherslu deildarinnar á heildræna upplifun af vörumerkinu Besta deildin. Megin markmið ráðningarinnar er að fjölga áhorfendum á völlinn og stækka vörumerkið í öllum skilningi þess orðs.

Ólafur er nafn sem kannski einhverjir kannast við, en hann hefur að mestu leyti starfað erlendis undanfarin ár. Þar hefur hann komið að stórum verkefnum innan hagkerfis knattspyrnunnar og mikils er vænst af störfum Ólafs á komandi tímabili.

„Við erum gríðarlega ánægð að fá Ólaf H. til liðs við Bestu deildina. Okkur hefur lengi langað að setja meiri áherslu á þennan málaflokk og með komu Ólafs stígum við stórt skref í þá átt að þróa enn frekar vöruna sem Besta deildin er,“ Segir Birgir Jóhannsson framkvæmdarstjóri ÍTF.

Það eru einungis 28 dagar í að flautað verði til leiks í deildinni og það verður áhugavert að sjá hvort að ummerki Ólafs H. verði sjánleg í fyrsta leik þegar Víkingar taka á móti Breiðabliki 10. apríl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði
433Sport
Í gær

Simeone óð í leikmann Arsenal við leikmannagöngin eftir leik í gær – Myndband

Simeone óð í leikmann Arsenal við leikmannagöngin eftir leik í gær – Myndband