
Fjórum leikjum var að ljúka í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar. Um fyrri leikina var að ræða.
Logi Tómasson lék allan leikinn fyrir Samsunspor sem tapaði 1-3 fyrir Rayo Vallecano í Tyrklandi. Liðið á því erfitt verkefni fyrir höndum á Spáni í seinni leiknum.
Gísli Gottskálk Þórðarson var allan tímann á varamannabekk Lech Poznan sem tapaði sömuleiðis 1-3 gegn Shakhtar Donetsk.
Þá vann AZ Alkmaar 2-1 sigur á Sparta Prag og loks vann Strasbourg útisigur á Rijeka frá Króatíu, 1-2.