
Allesandro Bastoni, miðvörður Inter, hefur töluvert verið orðaður burtu undanfarið, til að mynda við Liverpool.
Liverpool er í leit að miðverði fyrir sumarið. Ibrahima Konate verður þá samningslaus og er farið að hægjast á Virgil van Dijk.
Bastoni er 26 ára gamall og gæti orðið lykilmaður í hjarta varnarinnar í þó nokkur ár á Anfield.
Það eru þó fleiri stór félög á eftir Bastoni, þar á meðal er Barcelona, sem einnig er á eftir miðverði fyrir sumarið.
Félagið telur sig meira að segja í góðri stöðu til að fá hann í sumar og skáka þannig Liverpool, ef marka má nýjustu fréttir.
Bastoni er stór hlekkur í liði Inter og yrði áfall að missa hann. Kappinn verður því sennilega ekki ódýr. Hann á þó tvö ár eftir af samningi sínum í sumar og það gæti því orðið góður tími til að selja.