fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Látin eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Huggun í því að þjáning hennar er á enda

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. mars 2026 08:30

Eduard Lowen og eiginkona hans sem barðist við krabbamein.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnuheimurinn í MLS-deildinni syrgir eftir að Eduard Löwen, miðjumaður St. Louis City SC, greindi frá því að eiginkona hans, Ilona Löwen, hafi látist eftir langa baráttu við krabbamein.

Ilona lést að morgni 9. mars, tæpum tveimur árum eftir að hjónin greindu opinberlega frá því að hún hefði greinst með sjúkdóminn. Félag Löwens staðfesti tíðindin á mánudag og í kjölfarið bárust fjölmörg samúðarskilaboð frá stuðningsmönnum og félögum víðs vegar um Bandaríkin og Þýskaland.

Í yfirlýsingu frá St. Louis City SC sagði. „Eftir tveggja ára baráttu við krabbamein lést Ilona Löwen í morgun, 9. mars 2026. Við syrgjum með Edu og öllum sem hafa orðið fyrir þessum missi og biðjum samfélag CITY að halda þeim í bænum sínum á þessum erfiðu tímum. Ilona var fallegt dæmi um kærleika, auðmýkt og góðvild og hennar verður sárt saknað.“

Félagið birti einnig skilaboð frá fjölskylduprestinum Marc Sikma þar sem fram kom að hjónin hefðu byggt líf sitt á trú og að fjölskyldan fyndi huggun í því að þjáning hennar væri á enda. Löwen, sem er 29 ára gamall, tók nokkur leyfi frá liðinu eftir að eiginkona hans greindist með krabbamein árið 2024 til að geta sinnt henni.

Eduard Lowen
Getty Images

Fjöldi félaga í MLS sendi samúðarkveðjur, meðal annars Seattle Sounders, Columbus Crew og Vancouver Whitecaps. Löwen hóf feril sinn í heimalandi sínu Þýskalandi með Nürnberg þar sem hann sló í gegn árið 2017 og hjálpaði liðinu að komast upp í Bundesliguna árið 2018. Hann gekk síðar til liðs við Hertha Berlín árið 2019 og lék einnig um tíma á láni hjá Augsburg.

Árið 2022 samdi hann við St. Louis City SC og hefur síðan verið lykilmaður á miðsvæði liðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði
433Sport
Í gær

Simeone óð í leikmann Arsenal við leikmannagöngin eftir leik í gær – Myndband

Simeone óð í leikmann Arsenal við leikmannagöngin eftir leik í gær – Myndband